Fréttastofa RÚV
Framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur segir að bæta þurfi eftirlit ríkisins með fósturheimilum hér á landi. Framkvæmdastjórinn, Þyrí Halla Steingrímsdóttir, segir ekki gott að sveitarfélögin eigi að hafa eftirlit með sjálfum sér heldur ætti eftirlit með fósturheimilunum að vera hjá ríkinu. Hún kallar eftir auknu og bættu eftirliti íslenska ríkisins með fósturheimilum í landinu, ekki síst nú í kjölfar Bakkakotsmálsins svokallaða í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þyrí segir um þetta: „Mér finnst að ríkið megi líta sér nær í því og skoða hvaða eftirlitsheimildir höfum við og hvaða eftirlitsheimildir viljum við hafa. Það er ekki gott að sveitarfélögin séu alltaf að hafa eftirlit með sjálfum sér. [...] Það er ekki gott að barnaverndarþjónusturnar sem eru á ábyrgð sveitarfélaganna séu að hafa eftirlit með sjálfum sér. Við erum vistunaraðilarnir, við erum að vista börnin utan heimilis. Á sama tíma eigum við að hafa eftirlit með því að vistunin sé í lagi.“ Þyrí Halla ræðir við fréttaskýringaþáttinn Þetta helst um nýtt frumvarp til laga um barnavernd sem nú er í umsagnarferli á Alþingi. Þá lagði Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, frumvarpið, fram á Alþingi. Þáttinn má hlusta á hér: Barnavernd Reykjavíkur telur að endurskoða þurfi kafla um fósturheimili betur í nýju lagafrumvarpi sem liggur fyrir Alþingi. Framkvæmdastjórinn kallar eftir auknu eftirliti ríkisins með fósturheimilum. Gagnrýna að fósturkaflinn sé ekki unninn betur Fresturinn til að skila umsögnum við frumvarpið rennur út á morgun, miðvikudaginn 15. apríl. Kallað var eftir umsögnum frá 27 aðilum. Í einni umsögninni, frá Velferðarráði Reykjavíkur, er gagnrýnt sérstaklega að kaflinn um fósturmál sé ekki endurskoðaður nægilega vel og mikið. Þyrí Halla segir að ljóst sé að fósturheimilakafli frumvarpsins hafi tekið breytingum frá því í haust þegar frumvarpið um barnavernd var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda en að hennar mati hafi breytingarnar ekki verið nægilega miklar, ekki síst í ljósi Bakkakotsmálsins svokallaða sem greint var frá í Kveik í febrúar. Hvað segir Þyrí Halla um þessa gagnrýni? „Í rauninni lýtur gagnrýni okkar að því að það eru litlar sem engar breytingar á fósturkaflanum og það er mjög brýn þörf á að breyta þeim kafla [...] Í raun er þörf á að endurhugsa kerfið í heild sinni, þetta fósturkerfi,“ segir hún.
Go to News Site