Fréttastofa RÚV
Snorri Steinn Guðjónsson og hans teymi munu stýra íslenska karlalandsliðinu í handbolta út sumarið 2032. Það er lengsti samningur sem þjálfari strákanna okkar hefur skrifað undir. Snorri ræddi samninginn ítarlega í viðtali en árin sex eru hugsuð til að byggja íslenska liðið upp fyrir HM á heimavelli árið 2031. Þá eru Ólympíuleikarnir 2028 og 2032 einnig lykilþáttur í samningslengdininni. Ætlunin er að byggja Ísland upp til lengri tíma en Snorri viðurkennir að lengdin var ekki það fyrsta sem kom upp í viðræðunum. „Þetta var ekkert það fyrsta sem kom upp, við getum alveg viðurkennt það. Þessar samningaviðræður voru alveg nokkuð langar. Það var margt sem þurfti að fara yfir. Þegar þú gerir svona langan samning þá er fullt sem bæði ég og HSÍ þurfum að velta fyrir okkur. En niðurstaðan er góð og ég er sáttur.“ Hér má sjá viðtalið við Snorra í heild sinni. Snorri Steinn Guðjónsson ræddi nýjan samning sinn en hann mun stýra handboltalandsliði Íslands til sumarsins 2032. Snorri fór yfir framtíðarsýn landsliðsins, undirbúning fyrir HM á heimavelli 2031 og medalíukröfur. Horfa langt fram á við Snorri segir að stefnan sé sett á ÓL 2028 í Los Angeles en einnig að sjá hvaða glufur eru til staðar varðandi landsliðið árið 2031. Ef allt gengur upp varðandi byggingur Þjóðarhallar mun Ísland leika á heimavelli á HM það ár. „Einn anginn af þessu er að horfa langt fram á við. Fyrir mína parta eru þetta tvö aðskilin verkefni. Annars vegar að þjálfa A-landsliðið eins og það er í dag, þennan kjarna sem hefur myndast, og hins vegar að reyna að stækka þann kjarna og ná árangri á þessum mótum sem eru fram undan. Komast á Ólympíuleikana 2028. Næstu tvö mót eru lykilmót hvað það varðar. Svo er það hinn anginn, þessi hugsjón og þetta framtíðarplan sem mér og HSÍ finnst mikilvægt. Að það sé einhver sem er með augun á því og er að velta því fyrir sér hvað gerist í framtíðinni.“ „Við erum með HM heima 2031. Það þarf að vera þarfagreining og vangaveltur um hvaða lið gæti mögulega verið þar, hvar við þurfum jafnvel að fylla í götin og allt þetta. Ég held að það sé mikilvægt að einhver sé með augun á því.“ Einnig samið við Arnór - hékk ekki á bláþræði Arnór Atlason hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins síðustu þrjú stórmót. Hann er auk þess aðalþjálfari Holstebro í dönsku deildinni. Talið var að Danir vildu fá hann inn í sitt landsliðsteymi en að lokum skrifaði Arnór undir hjá Íslandi. Snorri segir að Arnór verði að svara fyrir sinn hluta en hann telur að staða þeirra hafi verið svipuð. „Arnór verður að svara fyrir áhuga á honum. Ég ætla ekki að gera það. En fyrir mig var gífurlega mikilvægt að hann yrði með mér. Ég lagði mikla áherslu á það. En ég held að hvað varðar mig sjálfan og samningaviðræður hans þá hékk þetta aldrei á neinum bláþræði. Ég fékk allavega ekki þá tilfinningu. Alveg eins og með mig og hann. Ef þú gerir þetta langan samning þá er eitthvað sem þarf að fara yfir. Hann þurfti að gera það alveg eins og ég.“ Gæti þjálfað félagslið Svo gæti farið að Snorri þjálfi félagslið samhliða störfum sínum sem landsliðsþjálfari. Heillar sú hugmynd Snorra? „Já, það heillar auðvitað alveg að þjálfa góð lið. En ég er mjög ánægður með þennan samning sem ég var að gera. Hann er nú töluvert langur. Fyrir mig að velta fyrir mér núna að taka við einhverjum liðum. Þetta er ekki staður né stund fyrir það. Í þessum bransa er ágætt að vera ekkert of mikið að velta hlutunum fyrir sér. Þetta er ekkert alltaf í þínum höndum. Maður verður bara að taka því sem kemur. Fyrir mér snýst þetta um að þjálfa íslenska landsliðið og gera það vel. Ég er eins og aðrir þjálfarar bundinn af einhverjum árangri. “ „En ef þú hefðir spurt mig í febrúar hvort það væri heillandi að þjálfa félagslið væri það bara þvert nei. Ég hef nóg með mig og landsliðið.“ Stefnan sett á Ólympíuleika Hugmyndin bak við sex ára samninginn er að hitta á tvo Ólympíufasa. Fyrst er það ÓL í Los Angeles 2028 og svo lýkur samningnum eftir sumarið 2032 en þá fara leikarnir fram í Brisbane í Ástralíu. Sjö efstu liðin á HM 2027 fara í Ólympíuforkeppni. Snorri segir það rökrétt skref að stefna hátt eftir að hafa orðið í 4. sæti á síðasta EM. „Ég held að topp átta myndi líklegast duga í það. Sagan segir okkur það. Ég held að við þurfum aðeins að bíða og sjá þegar líður á janúar, hvaða leikmenn eru heilir og hvort að okkar lykilmenn séu allir í toppstandi.“ „Árangurinn í janúar fannst mér vera rökréttur miðað við þá þróun sem hefur verið á liðinu. Auðvitað munum við nálgast næsta mót svipað. Við vitum samt hvað þarf til og hvað það er stutt á milli í þessu. Það er stutt í báðar áttir. En þegar þú hefur fengið smjörþefinn af því að vinna verðlaun þá held ég að allir vilji upplifa það aftur. Okkur finnst við eiga heima þarna. Auðvitað þarf margt að ganga upp. Við þurfum að spila vel en mér finnst við hafa liðið og vopnin í að viðhalda þessu.“ Sex ár - er það ekki bara gott? Jón Halldórsson formaður HSÍ ræddi einnig samningnn. Hann segir hugsuna með tímalengdinni að tengja störf Snorra við Ólympíuhringinn. „Við viljum stefna langt fram í tímann. Það eru stór verkefni fram undan. Við erum með HM 2031 á Íslandi, sem er bara eftir fimm ár. Við tengjum þetta við Ólympíuhringinn. Við höfum fulla trú á þjálfarateyminu okkar. Sex ár — er það ekki bara gott?“ Þá segir hann stefnuna setta á verðlaunasæti á næstu stórmótum. „Við erum gríðarlega ánægð og liðið er búið að vera í stöðugri þróun. Það er búin að vera mikil framför. Fjórða sætið á EM síðast var frábær árangur. Við höfum fulla trú á þeim. Þetta eru þeir aðilar sem munu leiða liðið okkar áfram næstu sex ár. Við ætlum að ná enn lengra sem þýðir þá væntanlega að stefna að verðlaunum.“ Viðtalið við Jón má sjá hér. Snorri Steinn Guðjónsson ræddi nýjan samning sinn en hann mun stýra handboltalandsliði Íslands til sumarsins 2032. Snorri fór yfir framtíðarsýn landsliðsins, undirbúning fyrir HM á heimavelli 2031 og medalíukröfur. Hrædd við uppsagnarfrest? HSÍ þurfti að greiða upp uppsagnarfrest Guðmundar Guðmundssonar árið 2023. Eru menn þar á bæ ekki hræddir við slíkar greiðslur þegar samið er til sex ára? Jón segir ákvæði liggja í báðar áttir og að bæði þjálfarar og samband séu sátt með niðurstöðuna. „Það er nú kannski ástæðan fyrir því að það er búið að taka þennan tíma að semja. Í öllum samningaviðræðunum snerust þær meira og minna um faglega þáttinn. En þær snerust líka um alls konar klásúlur í samningnum, því það geta alls konar hlutir komið upp. Þær klásúlur eru til þess að tryggja hag þjálfaranna og líka til að tryggja hag sambandsins. Það er bara eins og góðir samningar eru. Það er eitthvað gott í samningnum fyrir báða aðila.“
Go to News Site