Collector
Veifuðu ítrekað áliti fjármálaráðs | Collector
Veifuðu ítrekað áliti fjármálaráðs
Fréttastofa RÚV

Veifuðu ítrekað áliti fjármálaráðs

Fjármálaráðherra segir að fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sé grunnurinn að lækkun vaxta og bættum lífskjörum. Umræða um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hófst á Alþingi í dag. Umræðan stendur yfir í tvo daga þar sem fjármálaráðherra mælir fyrir áætluninni og fer yfir stóru myndina en á morgun mæta fagráðherrar og tala fyrir sínum málaflokkum. Áætlunin var kynnt í lok mars og voru helstu tíðindin þau, gangi áætlunin eftir, er að ríkissjóður verður rekinn með milljarðs afgangi. Yrði það þá í fyrsta sinn síðan 2018 sem ríkissjóður er rekinn með afgangi. „Með þessari áætlun sendum við skýr skilaboð: Ríkisstjórnin stendur við sín markmið. Það er forsenda þess að vextir lækki og lífskjör batni,“ sagði Daði Már í flutningsræðu sinni. Stjórnarandstaðan lítur áætlunina ekki jafn björtum augum og fjármálaráðherra. Vísaði hún ítrekað til álits fjármálaráðs sem sagði að þótt markmið um hallalaus fjárlög sé gott í sjálfu sér þá þurfi meira borð fyrir báru til að það sé trúverðugt, enda regla frekar en undantekning að óvænt áföll ríði yfir. Þá segir einnig í áliti fjármálaráðs að tenging bóta almannatrygginga við vísitölu, sem þingið samþykkti á dögunum, geti haft ýmsar afleiðingar í för með sér. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir ríkisstjórnina skella skollaeyrum við ábendingum fjármálaráðs. „Núna þegar fjármálaráð kemur með mjög alvarlegar athugasemdir segja menn: Það skiptir engu máli. Við ætlum ekki einu sinni að taka þátt í umræðunni.“ Stefán Vagn Stefánsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd, telur að áætlunin sé byggð á hæpnum forsendum og að lítið megi út af bregða svo að afgangur breytist í halla. „Ég hef raunverulegar áhyggjur af því í þessari fjármálaáætlun að ef ekkert frekar verður gert, þá getum við lent í þeirri stöðu að kjarasamningar eru í uppnámi. Þá er þessi ágæta fjármálaáætlun, sem er að mörgu leyti ágæt, í upplausn. Þá er ekki stafkrók að marka það sem í henni stendur vegna þess að þá eru forsendurnar farnar.“

Go to News Site