Fréttastofa RÚV
Unnar kjötvörur verða ekki á boðstólum í leik- og grunnskólum Reykjavíkur samkvæmt nýrri matarstefnu sem samþykkt var á borgarstjórnarfundi í dag. Stefnunni er ætlað að tryggja aðgengi að hollum mat óháð efnahag. Unnar kjötvörur geta aukið líkur á ýmsum krabbameinum, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnun, ekki síst þær sem innihalda nítríta og nítrata, tiltekin rotvarnarefni, eða svokölluð E-efni. Á fundi borgarstjórnar í dag vísuðu fulltrúar meirihlutans til þess varðandi breytingartillögu um að fella unnar kjötvörur út af matseðlum í leik- og grunnskólum nema í undantekningartilvikum – þar sem viðmiðið er fjórum sinnum á ári. „Hluti af íslenskri matarmenningu“ Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, og Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, voru meðal fulltrúa minnihlutans sem lögðust gegn tillögunni. „Mér finnst hún ganga heldur langt í því að banna hefðbundinn íslenskan mat, eins og slátur og bjúgu og saltkjöt á Sprengidaginn,“ sagði Magnea Gná. „Þá velti ég fyrir mér hvort ekki verði hægt að bjóða upp á pylsur, bjúgu, slátur, kjötfarsbollur, beikon, saltkjöt, skinku, kótelettur í raspi, kæfu, pepperoni og fleira í mötuneytum og starfsstöðum borgarinnar, og hvernig það myndi falla í kramið hjá þeim sem neyta matar hjá borginni ef við bönnum skinku og pepperoni á pitsur, bönnum slátur með grjónagrautnum. Þetta er allt svona klassískur matur sem er hluti af íslenskri matarmenningu.“ „Gamla góða íslenska kindakæfan“ Friðjón sagði þessa viðbót hafa komið óvænt inn í stefnuna og að henni þætti hún sérstök. „Til eru unnar kjötvörur sem eru krabbameinsvaldandi, það eru sérstaklega þau rotvarnarefni sem eru þar í, sem eru E-efni 250 og 251. Það eru unnar kjötvörur sem við þekkjum hérna á Íslandi sem eru ekkert með þessum rotvarnarefnum, sem eru ekki með þessum krabbameinsvöldum. Það er bara hin hefðbundna gamla góða íslenska kindakæfa til dæmis,“ sagði Friðjón. „Ég get ekki stutt þessa breytingartillögu og mun kjósa gegn henni.“ Magnús Davíð Norðdahl borgarfulltrúi Pírata sagði ekki aðeins þessi tilteknu rotvarnarefni vera krabbameinsvaldandi; heldur væri fylgni milli neyslu á unnum kjötvörum og tíðni krabbameina. „Það er vissulega rétt að eftir atvikum kunna þær að vera mishættulegar en það er mikil einföldun og reyndar ekki rétt miðað við þær rannsóknir allar sem ég hef kynnt mér að hættulega eiginleika megi einungis rekja til þessara rotvarnarefna.“ Borgarstjórn hefur samþykkt matarstefnu sem felur í sér að börn fái ekki unnar kjötvörur í mötuneytum leik- og grunnskóla borgarinnar. Fulltrúar minnihlutans segja að verið sé að útiloka margar tegundir af hefðbundnum íslenskum mat.
Go to News Site