Collector
Taka aftur upp blað og blýant og læsa tölvur inni í skáp | Collector
Taka aftur upp blað og blýant og læsa tölvur inni í skáp
Fréttastofa RÚV

Taka aftur upp blað og blýant og læsa tölvur inni í skáp

Kennslustundir í Tranegårdskolen í Hellerup á Sjálandi í Danmörku byrja á því að nemendur ná sér í verkefnamöppu og munda blýantana. Á meðan eru tölvurnar geymdar á öruggum stað. Kennarar og starfsfólk skólans hófu átak fyrir einu og hálfu ári til að minnka skjátíma nemendanna. „Nemendur léku sér eða gerðu eitthvað sem kom kennslunni ekkert við. Mér finnst nemendurnir vera meira til staðar. Ég næ betri tengslum við þau og horfi meira í augun á þeim frekar en að þau einblíni á skjáinn,“ segir Louise Lund, kennari í Tranegårdskolen. „Við ræðum saman í hádeginu, spilum á spil og teflum. Njótum samveru, sem er frábært og það höfum við lært, af því að tölvurnar eru læstar inni í skápnum,“ segir Oscar Risager sem er nemandi í skólanum.

Go to News Site