Collector
Móðir segir átakanlegt að Foreldrahúsi verði lokað | Collector
Móðir segir átakanlegt að Foreldrahúsi verði lokað
Fréttastofa RÚV

Móðir segir átakanlegt að Foreldrahúsi verði lokað

Móðir sem hefur nýtt sér þjónustu Foreldrahúss segir átakanlegt að því verði lokað 1.maí vegna fjárskorts. Hún segir foreldra barna í vanda þurfa stuðning. Foreldrahúsi verður lokað þar sem ekki fást styrkir frá hinu opinbera til að halda því opnu. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss gagnrýnir áhugaleysi stjórnvalda á úrræðinu og segir að skjólstæðingar séu í áfalli. Dóttirin með fjölþættan vanda og upplifir úrræðaleysi Sigrún Birna Sigurðardóttir er móðir stúlku með fjölþættan vanda. Dóttirin var greind með ADHD í grunnskóla og hefur átt erfitt með að tengjast öðrum. Sigrún Birna segir málefni barna með fjölþættan vanda oft vera flókin og mál dóttur hennar sé eitt af þeim. „ Eins og hún getur verið stórkostleg stelpa þá hefur hún afvegaleiðst og þróað með sér mjög alvarlegan vanda sem hefur haft áhrif á alla fjölskylduna.“ Þrátt fyrir að fjölskyldan hafi nýtt sér margvísleg úrræði og fengið aðstoð fagaðila, barnaverndar og stórfjölskyldunnar, hefur það ekki dugað til. Sigrún Birna hafði samband við Foreldrahús eftir að dóttir hennar lenti á bráðamóttöku, eftir að hafa tekið inn efni sem hún réði ekki við. Á bráðamóttökunni fékk Sigrún Birna val um að dóttirin yrði send í neyðarvistun á Stuðlum eða að hún tæki hana heim. „Ég valdi þann kost að taka hana með heim og fékk stuðning frá foreldrum mínum til að taka vaktina með mér næstu viku, í gegnum fráhvörfin og allt sem þeim fylgir,“ segir Sigrún Birna. Á þriðja degi með dótturina heima hafði Sigrún Birna samband við Foreldrahús, þar sem hún segist hafa mætt djúpstæðum skilningi á erfiðum aðstæðum. „Maður bara finnur fyrir trausti, hlýju og skilningi inn að beini í orðum og gjörðum þeirra Rúnu og Berglindar, og stelpan vill fara til þeirra, sem er líklega stærsti sigurinn.“ Dóttir Sigrúnar Birnu samþykkti að þiggja meðferðarpláss á Vogi og Sigrún Birna þakkar það meðferðaraðilunum í Foreldrahúsi. „Saman komum við henni lifandi í meðferð.“ Allt önnur aðferðafræði en þær höfðu vanist áður Sigrún Birna segir aðstoð og ráðgjöf Foreldrahúss hafa breytt öllu fyrir sig, sem foreldri í erfiðum aðstæðum. Aðferðafræðin sé allt öðruvísi en þær mæðgur höfðu áður upplifað og stuðningurinn sé heildrænn. „Hún á sína trúnaðarvinkonu hérna sem hefur verið að nota áhugahvetjandi samtal til að fá það fram hjá henni að hún þurfi að bæta úr málunum sínum á eigin forsendum.“ Ekkert foreldri velur sér það að lenda í því völundarhúsi sem barnaverndarkerfið er, segir Sigrún Birna. Hún segir lítið vera til af raunverulegum úrræðum og vandi dóttur sinnar, og margra annarra barna, sé orðinn of sérhæfður fyrir einstaka stofnanir að takast á við. Í Foreldrahúsi fékk móðirin loks rými til að nýta sér reynslu og þekkingu annarra sem lent hafa í svipuðum sporum. Óvissan um hvað tæki við næst minnkaði. Sigrún Birna segir það átakanlegt að Foreldrahús loki 1.maí. „Því þetta er þjónusta sem ég myndi mjög gjarnan vilja vera áfram í. Og ég finn það alveg að þó að manni finnist maður vera með ofsalega mikið af verkfærum heima við, þá þarf að styðja mann sem foreldri við að halda þreki og að vera í þessari baráttu.“ Mikil ánægja með Foreldrahús Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála gerði úttekt á starfsemi Foreldrahúss í fyrra. Samkvæmt henni er ánægja með þjónustuna, bæði meðal barna og foreldra - en lagt var til að úrbætur yrðu gerðar á skráningu mála og ráðstöfun styrkja. Sigrún Birna segir dóttur sína, og vini hennar, tala vel um Foreldrahús og meðferðaraðilana þar. Börnin séu mörg í áfalli yfir því að úrræðið loki. „Í mínu tilviki er það átakanlegt fyrir mína stelpu að sjá fram á að þetta sé búið hér. Eitt af því fáa sem hún hefur verið til í að taka þátt í.“ Starfshópur forsætisráðherra kynnti í mars tillögur um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda. Í yfirliti um þau úrræði sem eru í boði er ekki minnst á Foreldrahús, en þar kemur fram að skortur sé á sérhæfðum úrræðum fyrir börn með geð- og vímuefnavanda.

Go to News Site