Collector
Landsmenn flykkjast á dekkjaverkstæði: „Það er búið að vera alveg uppbókað“ | Collector
Landsmenn flykkjast á dekkjaverkstæði: „Það er búið að vera alveg uppbókað“
Fréttastofa RÚV

Landsmenn flykkjast á dekkjaverkstæði: „Það er búið að vera alveg uppbókað“

Frá og með morgundeginum er bannað að keyra á nagladekkjum. Landsmenn flykkjast því á dekkjaverkstæði til að setja sumardekkin undir og er víða fullbókað næstu vikur. Talsverður erill var á dekkjaverkstæðum í dag. Hjá Nesdekkjum á Breiðhöfða í Reykjavík byrjaði vertíðin á föstudag. „Það er búið að vera alveg uppbókað. Alveg bara hver einasti tími,“ segir Hermann Ingi Magnússon, þjónustustjóri Nesdekkja. Þorgeir Jóhannesson, rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar á Akureyri, segir mikla ötröð hafa skapast í morgun. „Það byrjaði með látum svolítið á föstudaginn og svo var gærdagurinn mjög góður. Í morgun er búin að vera röð alveg frá því klukkan átta. Við tókum 90 bíla í gær og ætli þetta verði ekki eitthvað um 120 bílar í dag.“

Go to News Site