Collector
„Þetta ætlar aldrei að lagast, þetta er alltaf sama vesenið“ | Collector
„Þetta ætlar aldrei að lagast, þetta er alltaf sama vesenið“
Fréttastofa RÚV

„Þetta ætlar aldrei að lagast, þetta er alltaf sama vesenið“

Það var tómlegt um að litast í Landeyjahöfn í dag eins og reyndar flesta daga þetta árið. Herjólfur hefur bara geta siglt þangað nokkra daga það sem af er ári og eftir óveðrið sem gekk yfir landið annan í páskum þá hefur jafnvel dæluskipið átt erfitt með að komast að til að losa sand. Tæpar 4 klukkustundir í stað 35 mínútna Það tekur um 35 mínútur fyrir Herjólf að sigla í Landeyjahöfn, samanborið við tæpar þrjár klukkustundir í Þorlákshöfn. Bilun í Herjólfi veldur því að nú tekur sú sigling rúmlega þrjár og hálfa klukkustund, og aðeins eru farnar tvær ferðir á dag í stað sjö. Landeyjahöfn hefur verið lokuð 73 daga það sem af er ári. Vestmannaeyingar eru langþreyttir á stöðunni og vilja róttækar aðgerðir. Innviðaráðuneytið hefur framlengt ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja um tvær vikur vegna stöðunnar. Vestmannaeyingar langþreyttir á stöðunni Vestmannaeyingar eru langþreyttir á stöðunni. „Þetta er bara eins og það hefur verið undanfarin ár, þetta ætlar aldrei að lagast. Þetta er alltaf sama vesenið. Þetta er bara hundfúlt að þurfa alltaf að standa í þessu að þurfa alltaf að sigla héðan úr Þorlákshöfn. Þetta er ekkert bjóðandi lengur,“ segir Sigurjón Birgisson Vestmannaeyingur. „Samgöngumálin hafa líka áhrif á atvinnulífið í Vestmannaeyjum. Það þarf að koma aðföngum frá og til Eyja þannig að þetta er hellingur sem er undir í þessu. Þetta skiptir bara miklu máli fyrir eyjarnar,“ segir Sigurjón. Hann segist fara mun sjaldnar í land á meðan ástandið er eins og það er. „Maður fer bara þegar maður nauðsynlega þarf, annars er maður að fara oft þegar það er Landeyjahöfn, þá er maður að fara oft um helgar og njóta þess að vera einhversstaðar á ferðinni en maður gerir það ekki á meðan ástandið er svona,“ segir Sigrjón. Horfir kannski til betri tíma með nýju dýpkunarskipi „Það þarf að gera eitthvað róttækt í Landeyjarhöfn. En það horfir kannski til betri tíma núna ef við erum að fá alvöru dýpkunarskip því að Álfsnesið hefur náttúrulega enga burði til að sjá um þetta. Vonandi lagast þetta við það, en svo horfum við náttúrulega á göngin, vonandi verður það sannleikur,“ segir Tómas Hrafn Guðjónsson. „Svo sitjum við uppi með þetta, alltaf fullt af sandi. Þannig já, þetta er bara mjög þreytt fyrir svona samfélag eins og okkur að það skuli ekkert vera gert neitt róttækt í þessu,“ segir Tómas. Framlengja ríkisstyrkt flug til Eyja Innviðaráðuneytið hefur framlengt ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja um tvær vikur til viðbótar vegna stöðunnar. Danska straumfræðistofnunin rannsakar straumana fyrir utan Landeyjarhöfn og niðurstöðu þeirrar rannsóknar er beðið, segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Óvíst er hve langan tíma viðgerð á Herjólfi tekur. Ein vélin er Herjólfi er biluð, hann þarf að fara í viðgerð. Baldur er varaskip Herjólfs, svo erum við líka með Herjólf 3 bundinn við höfn í Sundahöfn, svo það væri annað hvort skipið sem myndi leysa af Herjólf. Þetta með Landeyjahöfn, það hafa verið suðaustanáttir sem eru mjög erfiðar fyrir Landeyjarhöfn, og það þarf bara að vonast til að það lagist núna með vorinu, segir Eyjólfur.

Go to News Site