Collector
Netþrjótar sviku hálfan milljarð út úr Íslendingum árið 2025 | Collector
Netþrjótar sviku hálfan milljarð út úr Íslendingum árið 2025
Fréttastofa RÚV

Netþrjótar sviku hálfan milljarð út úr Íslendingum árið 2025

Netþrjótum tókst að svíkja hálfan milljarð út úr Íslendingum árið 2025 samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Það er mun meira en árið 2024 en þá var upphæðin tæpar 200 milljónir. Fjöldi tilkynninga rauk einnig upp milli ára, frá 153 upp í 552. Lögreglan vill nú auðvelda almenningi að tilkynna netsvik og hefur opnað fyrir sérstakt svæði fyrir tilkynningar um netsvik á vef lögreglunnar. Með nýju tilkynningagáttinni vonast lögreglan til að geta tekið netsvikamál fastari tökum. Allir geti orðið fyrir svona brotum Helena Rós Sturludóttir, samskiptafulltrúi ríkislögreglustjóra, segir ferlið stutt og einfalt og auðvelt að finna á vef lögreglunnar. Þar er hægt að benda á tilraun til netglæps, fólk fyllir út ákveðið form sem berst beint til lögreglu. Verði fólk fyrir fjársvikum þar sem óprúttnum aðilum hefur tekist ætlunarverkið þarf fólk aftur á móti að tilkynna það rafrænt í gegnum mínar síður á Ísland.is. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir brotin stundum talin minniháttar í augum kerfisins en séu stórmál fyrir þann sem fyrir því verður. „Þetta eru líka brot sem við vitum að sá sem fyrir verður fyllist gjarnan skömm og er feiminn við að tilkynna. Það eru líka skilaboðin hér í dag, það geta allir orðið fyrir svona brotum.“ Tilkynningar um netsvik nær fjórfölduðust á einu ári og talið er að aðeins minnihluti rati til lögreglu. Nú er hægt að tilkynna netsvik og tilraunir til þeirra á vefsíðu lögreglunnar.

Go to News Site