Fréttastofa RÚV
Verðið á West Texas Intermediate hráolíu hækkað örlítið þegar Asíumarkaðir voru opnaðir í morgun eftir umtalsverða lækkun í gær og síðustu daga. Verð á West Texas Intermediate-hráolíu hækkaði um 0,44% þegar Asíumarkaðir voru opnaðir í morgun.EPA / FRANCK ROBICHON Hver tunna kostaði 91,68 bandaríkjadali í morgun og hafði hækkað um 0,44 af hundraði. Miðlarar bíða átekta um áframhald friðarviðræðna milli Bandaríkjanna og Írans, sem Donald Trump forseti boðar að verði síðar í vikunni. Auk þess hafa Ísraelar og Líbanir sammælst um beinar friðarviðræður sem eykur bjartsýni um að átökum linni í Mið-Austurlöndum.
Go to News Site