Collector
Vefleitarvél auðveldar fólki að finna áa sína í félagsskírteinum Nasistaflokksins | Collector
Vefleitarvél auðveldar fólki að finna áa sína í félagsskírteinum Nasistaflokksins
Fréttastofa RÚV

Vefleitarvél auðveldar fólki að finna áa sína í félagsskírteinum Nasistaflokksins

Þýska dagblaðið Die Zeit hefur sett á laggirnar vefleitarvél, í samvinnu við þjóðskjalasöfn Þýskalands og Bandaríkjanna, sem auðveldar fólki að finna nöfn áa sinna í milljónum félagsskírteina Nasistaflokksins. Vélin flettir hratt gegnum nokkrar milljónir félagsskírteina flokksins eða NSDAP-Mitgliederkartei. Judith Busch talskona blaðsins segir í samtali við BBC viðbrögðin sláandi, þegar hafi milljónir notað leitarvélina frá því í aprílbyrjun og þúsundir deilt niðurstöðum sínum. Fólk segist í samtali við BBC hafa á augabragði séð hvort áar þess voru félagar í Nasistaflokknum eða ekki. Einn Austurríkismaður segist ekki undrandi á að hafa fundið nafn afa síns, sem gekk í flokkinn fimm dögum eftir að það varð heimilt. Hins vegar hafi nafn föður hans verið hreinsað af áburði um nasisma. Þjóðverji segir leitarvélina hafa eyðilagt goðsögnina um að enginn úr fjölskyldunni hafi tilheyrt flokknum. Rúmlega tíu milljónir Þjóðverja gengu til liðs við Nasistaflokkinn frá 1925 til 1945. Engu mátti muna að félagsskírteinin yrðu eyðilögð á lokadögum síðari heimsstyrjaldar, þar sem þau voru geymd í höfuðstöðvum flokksins í München. Pappírsverksmiðjueigandinn Hanns Huber kom skírteinunum undan og afhenti Bandaríkjamönnum. Tilvist skírteinanna spilaði lykilhlutverk í nasistahreinsunum Þýskalands að loknu stríði. Bandaríkjamenn varðveittu þau um næstum hálfrar aldar skeið í Berlín uns þau voru afhent þýska þjóðskjalasafninu 1994 og afrit á örfilmum send þjóðskjalasafninu í Washington. Þar til nýlega þurfti formlega beiðni til að skoða skírteinin en bandaríska safnið hóf birtingu þeirra á vefnum í mars.

Go to News Site