Collector
Strekkingsvindur og rigning | Collector
Strekkingsvindur og rigning
Fréttastofa RÚV

Strekkingsvindur og rigning

Morguninn verður blautur og einkennist af strekkingsvindi. Það lægir þó víða eftir hádegi og á vestanverðu landinu styttir upp. Áfram verður vætusamt austantil. Hiti verður á bilinu fimm til tíu stig. Veðurspáin er svohljóðandi: Austan og norðaustan 8-15 metrar á sekúndu, en 15-23 við suðurströndina til morguns. Víða rigning, talsverð úrkoma á Austfjörðum og Suðausturlandi. Lægir í dag og styttir upp um landið vestanvert, en áfram vætusamt austantil. Hiti víða á bilinu 5 til 10 stig yfir daginn. Næstu daga verður breytileg átt og dálítil væta með köflum. Hiti yfirleitt 3 til 10 stig að deginum.

Go to News Site