Fréttastofa RÚV
Menntamálaráðuneytið birti í dag lista yfir umsækjendur um stöðu skólameistara við þrjá framhaldsskóla. Tvær stöðurnar voru mikið í umræðunni í vetur eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, ákvað að auglýsa þær lausar til umsóknar frekar en að framlengja skipun þeirra sem þeim gegndu. Mikil umræða varð um starfslok Ársæls Guðmundssonar sem var skólameistari í Borgarholtsskóla. Hann setti ákvörðun um að auglýsa stöðu sína í samhengi við símtal sem hann fékk frá Ingu Sæland, þá félags- og húsnæðisráðherra og formanni Flokks fólksins, en ráðherra neitaði því. Árni Ólason, skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum, heyrði fyrst af því í fréttum RÚV að staða hans yrði auglýst. Árni sækir aftur um stöðuna sem hann gegnir nú. Tinna Kristbjörg Halldórsdóttir, félagsfræðingur og framhaldsskólakennari, sækir einnig um stöðuna. Tvær umsóknir bárust líka um stöðu skólameistara Borgarholtsskóla: Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, settur skólameistari eftir að Ársæll lét af störfum, og Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur. Öllu fleiri sóttu um stöðu rektors Menntaskólans við Hamrahlíð sem losnaði þegar Steinn Jóhannsson réði sig til starfa hjá Reykjavíkurborg. Umsækjendurnir eru fimm talsins. Þar á meðal er Helga Jóhannsdóttir, settur rektor. Aðrir umsækjendur eru Andri Guðmundsson framhaldsskólakennari, Harpa Jörundardóttir framhaldsskólakennari og sérfræðingur, Magnús Hlynur Haraldsson, framhaldsskólakennari og brautarstjóri, og Maren Davíðsdóttir framhaldsskólakennari og deildarstjóri.
Go to News Site