Collector
Framboð Miðflokksins barst 23 mínútum of seint | Collector
Framboð Miðflokksins barst 23 mínútum of seint
Fréttastofa RÚV

Framboð Miðflokksins barst 23 mínútum of seint

Framboð Miðflokksins til sveitarstjórnarkosninga í Árborg barst 23 mínútum of seint og ekki er kveðið á um undantekningar á skilafresti framboða í lögum. Séu gallar á framboðslistum fá umboðsmenn þeirra frest til að gera úrbætur en heimild til leiðréttingar á aðeins við ef þeir hafa verið afhentir innan tilskilins tíma. „Það að skila framboðslista of seint teljist ekki vera galli sem hægt er að leiðrétta á grundvelli þessa ákvæðis,“ segir í ákvörðun yfirkjörstjórnar Árborgar, sem úrskurðarnefnd kosningamála staðfesti með ákvörðun 13. apríl . Í málatilbúnaði Miðflokksins er atburðarásin rakin. Þar segir að öll nauðsynleg gögn hafi ótvírætt verið tilbúin klukkan 12 á hádegi 10. apríl, þegar framboðsfrestur rann út. Þá hefðu meðmæli yfir 100 kjósenda þegar borist yfirkjörstjórn formlega og rafrænt í gegnum meðmælendakerfi Ísland.is. Um þetta atriði tekur úrskurðarnefnd kosningamála undir með yfirkjörstjórn sveitarfélagsins að þó kjörstjórnin hafi haft aðgang að lista yfir meðmælendur með framboðinu á Ísland.is væri ekki unnt að líta svo á að slíkar upplýsingar jafngiltu tilkynningu um framboð. Miðflokkurinn segir vankunnáttu hafa valdið því að fulltrúar framboðsins hafi talið að tilkynningin væri rafræn. Samband hafi verið haft við yfirkjörstjórn klukkan 12:13 sem hafi upplýst að tímafrestur væri liðinn. Klukkan 12:22 hafi verið sendur tölvupóstur til yfirkjörstjórnar með framboðslista flokksins. Í rökstuðningi sínum segir Miðflokkurinn að kjörstjórn hafi vitað af framboðinu og hefði verið í lófa lagið að ná sambandi við flokkinn. Nokkrar mínútur til eða frá eigi ekki að skipta máli. Lýðræðislegar kosningar séu grundvallarréttur þegna og vafa eigi að túlka framboðum í hag. Úrskurðarnefnd kosningamála segir að markmið kosningalaga sé að styrkja lýðræðið með öruggri framkvæmd kosninga og til að tryggja jafnræði sé mikilvægt að reglur um tilkynningu framboðslista séu fyrirsjáanlegar og samræmdar. „Í kosningalögum er með skýrum hætti mælt fyrir um í hvaða tilvikum framlengja á framboðsfrest og hvaða tækifæri skulu veitt til að leiðrétta galla á framboðslistum. Ekki er gert ráð fyrir því í lögum að unnt sé að taka til greina tilkynningu um framboð sem berst utan frests þótt framboð hafi misskilið reglur sem um tilkynninguna gilda.“

Go to News Site