Collector
12 mánaða dómur fyrir brot gegn barni í Hafnarfirði | Collector
12 mánaða dómur fyrir brot gegn barni í Hafnarfirði
Fréttastofa RÚV

12 mánaða dómur fyrir brot gegn barni í Hafnarfirði

Helgi Bjartur Þorvarðarson hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 skilorðsbundna, fyrir kynferðislega áreitni. Helgi Bjartur var ákærður fyrir um að hafa brotist inn á heimili drengsins að næturlagi í september í fyrra og brotið á honum í svefnherbergi hans. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa greitt fyrir vændi. Maðurinn er fyrrverandi samstarfsmaður móður drengsins og býr í nágrenni við fjölskylduna. Rannsókn málsins lauk í desember og var í kjölfarið sent til héraðssaksóknara, þar sem það var sett í forgang. Samkvæmt heimildum fréttastofu fundust lífsýni úr manninum á fötum drengsins. Maðurinn játaði að hafa verið á vettvangi en bar að öðru leyti fyrir sig minnisleysi í skýrslutökum. Málið vakti mikinn ugg í samfélaginu, einkum eftir að foreldrar drengsins lýstu atburðarás kvöldsins og áhrifum þess á son þeirra í Kastljósi. Þau sögðu son sinn hafa verið sviptan öllu öryggi og trausti. Fréttin verður uppfærð.

Go to News Site