Fréttastofa RÚV
HK er komið með forskotið gegn KA í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki. Kópavogskonur höfðu betur 3-1 í hrinum í gær og leiða 1-0. KA vann fyrstu hrinu sem var afar jöfn, 25-23, en þá vöknuðu HK konur til lífs. HK vann aðra hrinu eftir upphækkun, 29-27. Afar mjótt var á mununum næstu hrinur og ljóst að það stefnir í spennandi einvígi. HK vann síðustu tvær hrinurnar 25-23 og 26-24. Því unnust allar fjórar hrinur gærkvöldsins með tveimur stigum. HK hafði betur gegn KA í úrslitaleik bikarsins nýverið. Elísabet Einarsdóttir fór fyrir HK með sautján stig og Julia Bonet Carreras var stigahæst hjá KA með 26 stig. Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér Íslandsmeistaratitiinn. Liðin mætast aftur á laugardaginn á Akureyri. Karlamegin mætast KA og Þróttur í fyrsta leik úrslitaeinvígisins í kvöld á Akureyri klukkan 18:30.
Go to News Site