Collector
Guðmundur Ingi tekur sæti Jónínu í nefnd | Collector
Guðmundur Ingi tekur sæti Jónínu í nefnd
Fréttastofa RÚV

Guðmundur Ingi tekur sæti Jónínu í nefnd

Guðmundur Ingi Kristinsson hefur tekið sæti Jónínu Bjarkar Óskarsdóttur í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins. Guðmundur Ingi sagði sig úr Flokki fólksins í fyrradag sökum trúnaðarbrests og hyggst sitja á þingi utan flokka. Hann á þó rétt á sæti í nefndum og kom það í hlut Flokks fólksins að eftirláta honum sæti í nefnd. Afráðið var að Guðmundur tæki sæti í umhverfis- og samgöngunefnd og verður Jónína Björk varamaður hans í staðinn. Guðmundur Ingi Kristinsson.RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon

Go to News Site