Collector
BBC segir 2.000 starfsmönnum upp | Collector
BBC segir 2.000 starfsmönnum upp
Fréttastofa RÚV

BBC segir 2.000 starfsmönnum upp

BBC, breska ríkisútvarpið, sagði 2.000 manns upp störfum í dag. Þetta er mesti niðurskurður hjá fjölmiðlinum síðustu 15 ár. Um 10 prósent starfsmanna missa vinnuna við uppsagnirnar sem tilkynnt var um á starfsmannafundi. The Guardian hefur eftir Philippu Childs, formanni Bectu, stéttarfélags fjölmiðlafólks, að verði frekari niðurskurður skerði það getu BBC til að sinna skyldum sínum. Hún segir stjórnvöld verða að tryggja fjármögnun BBC til framtíðar. Heimilum sem greiða útvarpsgjald hefur fækkað um 300.000 milli ára. Merki BBC.EPA / ANDY RAIN

Go to News Site