Collector
Ljóst að rekstur netverslana með áfengi sé ólögmætur | Collector
Ljóst að rekstur netverslana með áfengi sé ólögmætur
Fréttastofa RÚV

Ljóst að rekstur netverslana með áfengi sé ólögmætur

„Það liggur ljóst fyrir að þessi háttsemi er ólögmæt og það að halda þessari sölu áfram í þessari mynd er lögbrot,“ segir Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri á ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdastjóri Smáríkisins var fyrr í mánuðinum sakfelldur fyrir brot á áfengislögum fyrir sölu á þriggja lítra hvítvínsbelg. Í dómsúrskurðinum segir að netsala áfengis falli undir smásölu áfengis, en ÁTVR hefur einkaleyfi á slíku. Hildur Sunna segir að ákæruvaldið í heild sinni sé að fara yfir dóminn og meta hvað verði aðhafst í framhaldinu. Hún útilokar ekki að ráðist verði til aðgerða í ljósi úrskurðarins en ekkert hefur verið ákveðið. Samræma þurfi aðgerðir á milli svæða. Hún nefnir sem dæmi að Smáríkið sé með útibú á Akureyri. Ætlar að halda rekstrinum áfram Þó nokkur fyrirtæki stunda rekstur líkt og Smáríkið var sakfellt fyrir í héraðsdómi. Hildur segir það ábyrgð hvers og eins að ákveða hvað þeir geri í framhaldinu af dómnum. „En það er ljóst að háttsemin er ólögmæt.“ „Best er að fá sýknudóm, næstbest er að fá illa rökstuddan sektardóm,“ segir Arnar Sigurðsson, eigandi áfengisnetverslunarinnar Santé, inntur eftir viðbrögðum við dómnum yfir Smáríkinu. Hann segir að sér þyki málatilbúnaður dómsmálsins mjög skrítinn – að hans mati var ekki tekið nægilegt tillit til málsvarnar verjanda. Arnari þykir ekki ólíklegt að dómnum verði snúið við á æðri dómstigum og hann hyggst halda rekstri sínum áfram með óbreyttum hætti.

Go to News Site