Collector
Til skoðunar að framlengja vopnahlé um tvær vikur | Collector
Til skoðunar að framlengja vopnahlé um tvær vikur
Fréttastofa RÚV

Til skoðunar að framlengja vopnahlé um tvær vikur

Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Íran hafa til skoðunar að framlengja vopnahlé um tvær vikur. Fulltrúar pakistanskra stjórnvalda hafa borið skilaboð milli ríkjanna síðustu daga. Sendinefnd á vegum stjórnvalda í Pakistan kom til Tehran í dag til viðræðna við Íran um að setjast aftur að samningaborðinu með Bandaríkjamönnum. Fyrir sendinefndinni fer æðsti yfirmaður hers Pakistans. Stjórnvöld í Íran hafa staðfest að viðuræðum við Bandaríkin hafi verið haldið áfram í gegnum stjórnvöld í Pakistan, eftir að viðræður um helgina báru ekki árangur. Ríkin sömdu á dögunum um tveggja vikna vopnahlé sem rennur út 22. apríl. Bandaríski fjölmiðillinn Bloomberg greinir frá því að til skoðunar sé að framlengja það um tvær vikur. Hugmyndin er að reyna enn frekar að semja um varanlegt vopnahlé. Donald Trump Bandaríkjaforseti einnig gefið í skyn að viðræðum verði haldið áfram. Hann hefur sagt fólki að búa sig undir „ótrúlega tvo daga“ því líða fari að stríðslokum í Íran. Al Jazeera greinir frá því að helstu ágreiningsefnin milli Bandaríkjanna og Írans séu kjarnorkuvopnaáætlun Írans, opnun Hormússunds og skaðabætur til Írana vegna skemmda í stríðinu. Herir Bandaríkjanna og Ísraels hófu árásir á Íran 28. febrúar og hafa síðan drepið yfir 3.600 manns, samkvæmt mannréttindasamtökunum HRANA. Þar af 1.700 almenna borgara. Íranar hafa drepið og sært fólk í gagnárásum á nágrannaríkin, þar af tólf í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Go to News Site