Fréttastofa RÚV
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir að samstaða og stöðugleiki sé nauðsynlegur til að draga úr vægi verðtryggingar líkt og ríkisstjórnin stefnir að fyrir árslok. „Hluti af vandamálinu okkar, hluti af þessum verðbólguvæntingarvandamálum okkar er að verðtryggingin er svo útbreidd að verðbólga veldur verðbólgu og það er vítahringur sem við þurfum að rjúfa,“ sagði Daði á degi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í dag. „En svo er það þetta: til þess að geta rofið hann þurfum við stöðugleika. Ef ég segði við ætlum að afnema verðtrygginguna á þriðjudaginn í næstu viku þá yrði algjört uppþot á markaði, fullkomin óvissa og það væri hrikalega vond hugmynd.“ Daði segist meðvitaður um að ríkið þurfi að stíga ákveðin skref. „Ég held líka að það sé mikilvægt að byrja að vinda ofan af þessu, byrja þar sem það er hægt og veldur ekki meiri háttar uppþotum og taka síðan skref fyrir skref fyrir skref,“ sagði Daði. „Forsendurnar eru til staðar. Við erum núna með böggum hildar yfir verðbólgutölum sem í sögulegu samhengi á Íslandi eru lágar. Það þýðir að grunnurinn fyrir agann sem við þurfum að innleiða, hann er orðinn til.“ Daði segir að tekist hafi að byggja upp traust á íslenska bankakerfinu eftir að það fór algjörlega í vaskinn eftir bankahrunið 2008. „Það hefur okkur tekist þrátt fyrir allt þrátt fyrir það sem við höfum gengið í gegnum, á til þess að gera á stuttum tíma. Núna er tækifærið til að nýta sér þessar fjárfestingu og byrja að vinda ofan af fyrirkomulagi sem komið er á eftir hagstjórnarmistök áttunda áratugarins.“
Go to News Site