Fréttastofa RÚV
Samfélagið þarf að koma í veg fyrir að fólk noti fíkniefni til að deyfa sig segir Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður til fjörutíu ára. Nauðsynlegt sé að draga úr eftirspurninni eftir eiturlyfjum og efla forvarnir. Guðmundur sérhæfir sig í leit að týndum börnum og segir úrræðaleysi í kerfinu. Sprenging varð í innflutningi á kókaíni í fyrra. Forvarnir byrja á heimilunum Í Kveik í gær var fjallað um um mikla fjölgun þeirra sem reykja kókaín, sem þá kallast krakk. Guðmundur segist ekki hafa orðið var við krakkneyslu meðal þeirra barna sem hann sinnir, sem sé afmarkaður hópur. „En ég veit af þessu, ég heyri alveg af þessu hjá krökkum sem ég er með og eru í neyslu. Það hefur þá verið meira í eldri hlutanum, sem eru 17/18 ára en ekki hjá þessum yngri. Sem betur fer.“ Guðmundur sérhæfir sig í leit að týndum börnum, sem oft hafa ánetjast fíkniefnum. Hann segir að sögurnar séu oft átakanlegar og áföll í æsku að baki neyslu fólks. Hann vill að kerfin vinni betur saman til að draga úr eftirspurn eftir eiturlyfjum og þar með framboðinu. Guðmundur segir nauðsynlegt að finna réttar forvarnir og beita þeim á réttum tíma. Allar forvarnir byrji þó inni á heimilum barna. „Gefum okkur tíma ef við ætlum að eignast börn. Gefum okkur tíma til þess að ala þau upp og vera með þeim og skapa þær aðstæður að þau lendi ekki í því að þurfa að finna eitthvað til þess að deyfa sig.“ Úrræðaleysi í málefnum barna með fjölþættan vanda Stjórnvöld verja milljörðum árlega í baráttuna gegn fíkniefnum. Á sama tíma hefur verið fjallað um úrræðaleysi í málum barna með fjölþættan vanda. Guðmundur segir að lengi hafi verið bent á að barn sem glími við fjölþættan vanda lendi á veggjum í kerfinu. Heilbrigðiskerfið sinni ekki börnum sem eru með fíknivanda og biðlistar séu langir eftir sérhæfðri þjónustu. Guðmundur segir foreldra oft leita til sín eftir að börn þeirra hafa verið nauðungarvistuð vegna fíkni- eða geðvanda. „Og svo er það útskrifað þaðan og á að koma eftir 8 mánuði eða 9 mánuði í næstu meðferð. Það er alltof langur tími.“ Guðmundur segir að með snemmtækri íhlutun megi sporna við útbreiðslu eiturlyfjaneyslu og draga úr hættu á að börn ánetjist eiturlyfjum þegar þau eldast.
Go to News Site