Collector
Bæjarar gulltryggðu sæti í undanúrslitum á lokamínútunum | Collector
Bæjarar gulltryggðu sæti í undanúrslitum á lokamínútunum
Fréttastofa RÚV

Bæjarar gulltryggðu sæti í undanúrslitum á lokamínútunum

Tveir leikir voru í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld. Bayern München tók á móti Real Madríd og heimamenn leiddu 2-1 fyrir leikinn í kvöld. Þýska liðið byrjaði betur Aleksandar Pavlovic skoraði strax á sjöttu mínútu, 1-0. Þetta átti þó eftir að vera fjörugur leikur og jafnt stóð í hálfleik, 2-2. Þannig stóð allt þar til á 86. mínútu þegar Eduardo Camavinga kom Spánarliðinu yfir 3-2 og þá virtist stefna í framlengingu. Bæjarar höfðu annað í hyggju því Luis Díaz jafnaði á 89. mínútu, 3-3, sem hefði nægt liðinu áfram en Michael Olise bætti um betur og tryggði liðinu 4-3 sigur. Bayern vann einvígið því 6-4 og kemur til með að mæta PSG í undanúrslitum. Arsenal áfram eftir markalaust jafntefli Þá tók Arsenal á móti Sporting í fremur tíðindalitlum leik sem lauk með markalausu jafntefli. Arsenal hafði unnið fyrri viðureign liðanna 1-0 og fer því áfram þar sem Atlético Madrid bíður. Fyrri umferðin fer fram 28. og 29. apríl og síðari 5. og 6. maí.

Go to News Site