Collector
Áslaug Arna tekur aftur sæti á þingi í sumar | Collector
Áslaug Arna tekur aftur sæti á þingi í sumar
Fréttastofa RÚV

Áslaug Arna tekur aftur sæti á þingi í sumar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi ráðherra mun taka sæti aftur á þingi í sumar eftir níu mánaða leyfi frá þingstörfum. Áslaug hefur síðustu lagt stund á MPA nám við Colombia-háskóla í New York í Bandaríkjunum. Áslaug greinir frá þessu á Instagram síðu sinni en hún hyggst halda heim beint eftir útskrift skólans sem fer fram þann 21. maí. Áslaug hefur alls gegnt þremur ráðherraembættum á stjórnmálaferli sínum, hún var dómsmálaráðherra 2019–2021, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2021–2022 og nú síðast gegndi hún embætti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra frá 2022 til 2024.

Go to News Site