Fréttastofa RÚV
Stjarnan og Hörður áttust við í þriðja leik sínum í umspili um sæti í Olís deild karla í handbolta í kvöld. Stjarnan hafði þegar unnið tvo leiki og vann í kvöld þann þriðja sem þýðir að liðið heldur sæti sínu í deildinni. Sigurinn var þó ekki auðfenginn í dag því framlengja þurfti leikinn. Jhonatan Santos skoraði á 60. mínútu fyrir Hörð og kom leiknum í framlengingu. Þar reyndust Stjörnumenn með meira úthald því liðið vann loks öruggan átta marka sigur, 40-32. Ísak Logi Einarsson var markahæstur Garðbæinga með tíu mörk. Hans Jörgen Ólafsson skoraði sex mörk í dag.Rúv / Mummi Lú Stjarnan mun því halda áfram í úrvalsdeild og Hörður verður í Grill-66 deildinni.
Go to News Site