Collector
Grjónagrautur með lifrarpylsu ekki á útleið | Collector
Grjónagrautur með lifrarpylsu ekki á útleið
Fréttastofa RÚV

Grjónagrautur með lifrarpylsu ekki á útleið

Ellen Alma Tryggvadóttir, verkefnastjóri næringar hjá embætti Landlæknis, ræddi nýja matarstefnu borgarstjórnar í Kastljósi í kvöld. Stefnan felur í sér að unnar kjötvörur verða ekki leyfilegar sem aðalmáltíðir í mötuneytum leik- og grunnskóla borgarinnar nema í undantekningartilfellum. Ellen segir það misjafnt eftir skólum hvort unnar kjötvörur séu algengar á matseðlum. Hún segir slátur með grjónagraut ekki vera meðal þess sem sé á útleið þegar stefnan tekur gildi þar sem slátur sé meðlæti. „Slátur er meðlæti með grjónagraut. Það eru einmitt til handbækur og þar er talið upp að matur eins og slátur má vera einu sinni til tvisvar í mánuði,“ segir Ellen.

Go to News Site