Fréttastofa RÚV
Yfirvöld í Líbanon segja hylla undir vopnahléssamkomulag við Ísrael og boða tilkynningu þess efnis í mjög náinni framtíð. Reykur stígur til himins eftir árás Ísraelsher í Suður-Líbanon.EPA / ATEF SAFADI Financial Times gerir því skóna að samkomulagið tengist því hversu lengi vopnahlé Bandaríkjanna og Írans varir. Það rennur út 22. apríl og til stendur að framlengja það um tvær vikur. Sendinefnd Pakistans með æðsta yfirmann hersins í broddi fylkingar kom til Írans í dag til að fá þarlend stjórnvöld til að setjast að samningaborði að nýju. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir samning við Íran í augsýn þótt klerkastjórnin hafi ekki enn fallist á viðræður.
Go to News Site