Collector
Fyrsta skóflustungan að kalkþörungaverksmiðju tekin í Súðavík | Collector
Fyrsta skóflustungan að kalkþörungaverksmiðju tekin í Súðavík
Fréttastofa RÚV

Fyrsta skóflustungan að kalkþörungaverksmiðju tekin í Súðavík

Í dag var fyrsta skóflustungan að verksmiðju Íslenska Kalþörungafélagsins í Súðavík tekin. Stefnt er að því að húsið verði risið og hægt að hefja vinnslu um mitt næsta ár. „Hér munum við framleiða kalsíum úr kalkþörungum sem fer annars vegar í fóðurbæti og hins vegar í matvælaframleiðslu,“ segir Halldór Halldórsson forstjóri Ískalks. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að þegar starfsemi verði komin á fullt þurfi tuttugu og fimm til þrjátíu starfsmenn. „Við eigum eftir að láta á það reyna hvort það sé nóg fólk í Súðavík. Við vonumst auðvitað til þess að það fólk verði áhugasamt því við munum fara að auglýsa eftir fólki á næsta ári.“ Halldór telur að nýi vinnustaðurinn muni hafa góð áhrif í Súðavík og fyrirtækið vilji hafa sem flest starfsfólk sitt þar.

Go to News Site