Collector
Heilsu Ratko Mladić hnignar dag frá degi eftir að hann fékk slag | Collector
Heilsu Ratko Mladić hnignar dag frá degi eftir að hann fékk slag
Fréttastofa RÚV

Heilsu Ratko Mladić hnignar dag frá degi eftir að hann fékk slag

Heilsu serbneska stríðsglæpamannsins Ratko Mladić fer hnignandi eftir að hann fékk minniháttar slag þar sem hann situr í fangelsi í hollensku borginni Haag. Mladić var fluttur á sjúkrahús í síðustu viku til rannsókna og þaðan aftur í fangelsið. Sonur hans Darko Mladić greindi frá þessu í viðtali við ríkissjónvarp Serbíu í gær og kveðst sjálfur hafa fengið upplýsingar um heilsu föður síns frá lækni sem Sameinuðu þjóðirnar heimiluðu að hefði samband. Líðan Mladićs er verulega slæm og versnar dag frá degi að sögn sonarins sem vill að serbneskt heilbrigðisstarfsfólk fái læknaskýrslur til að meta hvað gerðist. Það séu grundvallarmannréttindi. Darko Mladić vonast einnig til að föður sínum verði leyft að njóta læknisþjónustu í heimalandinu, þar sem margir líta á hann sem hetju. Ratko Mladić hefur lengi átt við heilsubrest að stríða en hefur ekki þótt nógu veikur til að verða látinn laus. Mladić var æðsti yfirmaður hers Bosníu-Serba, hafði viðurnefnið „Slátrarinn frá Bosníu“ og var handtekinn 2011 eftir sextán ár á flótta. Hann var sakfelldur árið 2017 fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð í Júgóslavíustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar. Áfrýjunardómstóll Sameinuðu þjóðanna staðfesti dóminn árið 2021. Sannað þótti að hann hefði staðið fyrir umsátri um Sarajevóborg og fjöldamorði í Srebrenica árið 1995 þegar á níunda þúsund drengir og fullorðnir karlmenn voru teknir af lífi.

Go to News Site