Collector
Minnst 14 týndu lífi í loftárásum Rússlandshers og minnst tvö börn í árásum Úkraínumanna á Rússland | Collector
Minnst 14 týndu lífi í loftárásum Rússlandshers og minnst tvö börn í árásum Úkraínumanna á Rússland
Fréttastofa RÚV

Minnst 14 týndu lífi í loftárásum Rússlandshers og minnst tvö börn í árásum Úkraínumanna á Rússland

Minnst 14 voru drepnir í stórfelldum loftárásum Rússlandshers á Úkraínu í nótt. Tvö börn voru drepin í árásum Úkraínuhers á íbúðasvæði í Krasnodar-héraði í Rússlandi. Tólf ára barn og minnst þrír fullorðnir voru drepnir í árás á höfuðborgina Kyiv og tveir í borginni Dnipro, miðsvæðis í Úkraínu. Þar særðust um tíu manns. Hið minnsta þrettán særðust í Kyiv, samkvæmt upplýsingum borgarstjórans Vitali Klitschko. Hann segir björgunarsveitir hafa náð barni undan rústum íbúðarhúss sem hrundi til grunna. Mörg hinna særðu eru heilbrigðisstarfsmenn að sögn Klitschkos. Að minnsta kosti sex týndu lífi í hafnarborginni Odesu við Svartahaf og tvennt særðist í drónaárás á borgina Kharkív. Rússar hafa gert nær linnulausar loftárásir að næturlagi frá upphafi innrásarstríðsins og nýverið hófu þeir atlögur að degi til einnig. Úkraínumenn hafa svarað í sömu mynt undanfarin misseri.

Go to News Site