Collector
Stjórnvöld ætla að hækka útgjöld til varnarmála talsvert á næstu árum | Collector
Stjórnvöld ætla að hækka útgjöld til varnarmála talsvert á næstu árum
Fréttastofa RÚV

Stjórnvöld ætla að hækka útgjöld til varnarmála talsvert á næstu árum

Áströlsk yfirvöld hyggjast hækka útgjöld til varnarmála upp í þrjú prósent af landsframleiðslu fyrir árið 2033. Fyrra markmið var 2,3 af hundraði. Ástralska stjórnin segir ástæðu hækkunarinnar tengjast stríðsátökum um allan heim auk þess sem Bandaríkjastjórn hefur þrýst á um hækkun útgjalda til varnarmála. Stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth krafðist þess í fyrra að Ástralir hækkuðu útgjöldin í 3,5 prósent. Ástralski varnarmálaráðherrann Richard Marles segir tekið að molna undan alþjóðlegum reglum sem áður hömluðu notkun valds og hernaðarmáttar. „Ekki hafa fleiri lönd um veröld alla átt í stríði síðan seinni heimsstyrjöldinni lauk,“ segir Marles. Ástralir hafa styrkt eldflaugavarnir sínar undanfarin ár sem viðbragð við stækkun herskipaflota Kína. Auk þess hefur þjónustumiðstöð fyrir kjarnorkukafbáta verið í smíðum á grundvelli AUKUS-varnarsamstarfsins við Bretland og Bandaríkin. AUKUS er þríhliða öryggissamstarf Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu sem miðar að því að bregðast við aukinni ásókn Kínverja í Indlandshafi og Kyrrahafi. Einnig hafa sjálfvirkir kafbátar og orrustuþotur verið í smíðum til að verja víðfeðma strandlengju landsins.

Go to News Site