Fréttastofa RÚV
Líkurnar á að þotueldsneyti gangi til þurrðar aukast með hverjum degi sem Hormússund helst lokað. Erfitt er að spá um hvenær birgðir klárast, að mati sérfræðinga. Hættan á eldsneytisskorti er mest í ríkjum Asíu og í ögn minna mæli í Evrópuríkjum, sem að stórum hluta reiða sig á olíuafurðir frá ríkjunum við Persaflóa. AFP-fréttaveitan segir litlar birgðir á Íslandi , Bretlandi og í Hollandi. Staðan sé betri í Póllandi, Búlgaríu, Austurríki og Frakklandi. Japanir hafa komið sér upp digrum forða enda reiða þeir sig algerlega á innflutta olíu. Dregið gæti úr flugferðum þegar í maí eða júní Dregið gæti verulega úr flugferðum í maí eða júní, að mati orkuhagfræðingsins Claudio Galimberti sem var í viðtali á fjármálastöðinni CNBC í gær. Hann sagði fjölda flugferða þegar hafa verið frestað í Evrópu þótt sama dag hefði framkvæmdastjórn ESB sagt engin merki um eldsneytisskort ennþá. Þó gæti myndast skortur í náinni framtíð, ekki síst á þotueldsneyti. Smærri flugvellir gætu fundið meira fyrir skorti en þeir stærri. ACI Europe, samtök evrópskra flugvalla, vöruðu framkvæmdastjórnina við því í liðinni viku að skortur gæti blasað við innan þriggja vikna, verði olíuskipum ekki leyft að sigla um Hormússund. Fatih Birol, framkvæmdastjóri Alþjóðaorkustofnunarinnar, tók í sama streng en samkvæmt nýrri skýrslu stofnunarinnar gæti skortur skollið á í júní. Um fimmtungur alls olíuflutnings heims fer um sundið á friðartímum en það hefur verið nánast harðlokað frá því Bandaríkin og Ísrael lögðu til atlögu gegn Íran 28. febrúar.
Go to News Site