Fréttastofa RÚV
Eiganda áfengisnetverslunarinnar Santé þykir málatilbúnaðurinn í dómi yfir eiganda Smáríkisins fráleitur og hann bindur vonir við að honum verði hnekkt á seinni dómsstigum. „Viðbrögð mín eru náttúrlega að málatilbúnaðurinn sé fráleitur. Auðvitað er óútskýrt af hverju ákæruvaldið ræðst í sakamál undir formerkjum prófmáls. Það er mjög óvenjulegt í alla staði og á eftir að fá skýringar á því og hvert framhaldið verður þá líka. Ætli það sé þá næst að kæra aðra?“ segir Arnar Sigurðsson, eigandi Santé. Fyrr í mánuðinum var eigandi Smáríkisins sakfelldur í héraði fyrir sölu á þriggja lítra hvítvínsbelju á netinu. Sviðsstjóri ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sagði við fréttastofu í gær að dómurinn sýndi fram á greinilegt ólögmæti netsölu með áfengi. Ákæruvaldið hafi til skoðunar hvort eitthvað verði aðhafst í framhaldinu og útilokar ekki að gripið verið til aðgerða. „Ég hef aldrei vitað til þess að lögregla ætlaði að taka að sér að fullnusta dómi sem hefur verið áfrýjað til æðra dómsstigs. Mér þætti undarlegt ef lögreglustjóri ætlaði að bregðast sérstaklega við dómi þessa eina héraðsdómara,“ sagði Arnar þegar hann var spurður hvort hann hefði áhyggjur af mögulegum aðgerðum lögreglu. Hann er vongóður um að dómnum, sem hefur verið áfrýjað, verði hnekkt á seinni dómsstigum. Fyrirkomulag áfengisverslunar og löggjöfin að baki henni segir Arnar að sé barn síns tíma. „Og raunveruleikinn núna er allt annar en þegar hún var sett á sínum tíma. Ekki síst vegna breyttra viðskiptahátta ÁTVR sjálfs. Ég er bjartsýnn á að þetta mál horfi allt til betri vegar fyrir neytendur því í grunninn er viðskiptafrelsi auðvitað neytendamál,“ segir hann.
Go to News Site