Fréttastofa RÚV
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sagði í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag að til standi að gera breytingar á Loftbrú. Ekki standi til að hætta með hana né að draga saman fjárveitingar til verkefnisins. Í dag niðurgreiðir ríkið 40% af heildarfargjaldi fyrir allt að 6 flugleggi á ári fyrir fólk á landsbyggðinni. Að mati Eyjólfs er möguleiki til þess að nýta skattpeninga landsmanna betur með fastri krónutölu en ekki prósentutölu, þar sem flugmiðar hækki gjarnan og hafa hækkað á undanförnum árum. Hvernig virkar Loftbrú? 40% afsláttur af heildarfargjaldi fyrir allt að 6 flugleggi á ári Fyrir alla með lögheimili fjarri borginni og á eyjum Bætir aðgengi landsbyggðar að miðlægri þjónustu í höfuðborginni Loftbrú veitir 40% afslátt af heildarfargjaldi fyrir allar áætlunarleiðir innanlands til og frá höfuðborgarsvæðinu. Fullur afsláttur er veittur hvort sem valið er afsláttarfargjald eða fullt fargjald. Hver einstaklingur getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að þrjár ferðir til og frá Reykjavík á ári (sex flugleggir). Þó nokkrir þingmenn hafa tjáð sig um ummæli Eyjólfs og lýst yfir áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum. Almenn sátt sé um fyrirkomulagið meðal fólks á landsbyggðinni og hafa stjórnarandstöðuþingmenn sagt að núverandi ríkisstjórn vegi ítrekað að landsbyggðinni. Í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn fréttastofu kemur fram að nýting á niðurgreiðslum með Loftbrú hafi aukist um 11% frá 2022 en kostnaður á sama tíma hækkað um 39%. Að sögn Eyjólfs nýta um 62.000 manns sér Loftbrú árlega og kostnaður er áætlaður um 600 milljónir á ári en undanfarin ár hefur þurft að bæta fjármagni í verkefnið þegar fjárheimild hefur klárast á haustmánuðum.
Go to News Site