Collector
Metganga lax í Elliðaám í fyrra | Collector
Metganga lax í Elliðaám í fyrra
Fréttastofa RÚV

Metganga lax í Elliðaám í fyrra

Metfjöldi laxa gekk upp í Elliðaár í fyrra og var það stærsta ganga frá náttúrulegu klaki frá því að teljari var settur upp árið 1989. „Laxinn í Elliðaárdalnum er þannig núna að það stirnir af öllu saman,“ segir Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur. Hann hefur rannsakað svæðið í hátt í 15 ár. Jóhannes var gestur í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í gær. Aldrei hafa jafn margir laxar gengið í Elliðaár og í fyrra. Fiskifræðingur segir að þar séu bestu lífslíkur skráðar hjá vöktuðum laxi í heiminum. Bestu lífslíkur lax í veröldinni Jóhannes segir að árið 2025 hafi rúmlega 3400 laxar gengið í ána. Fjöldinn sé vegna þess að frá 2020 hafi fólki verið gert að sleppa veiddum löxum. „Þá komu hundruð laxa aukalega af því að þeim var sleppt. Þeir náðu að hrygna og svo gengu þeir til sjávar. Og hluti þeirra komst aftur til að hrygna öðru sinni.“ Árið 2024 hafi svo gönguseiðastofninn verið kominn yfir 20 þúsund. Jóhannes segir að þróun sé mögnuð, því þetta eigi sér stað í höfuðborg. „Endurheimtirnar eru líka magnaðar. Þetta eru bestu endurheimtur úr sjó, sem sagt bestu lífslíkur skráðar hjá vöktuðum laxi í veröldinni. Það er laxinn í Elliðaánum.“ Margir veiðimenn eru, að sögn Jóhannesar, orðnir langeygir eftir því að fá lax úr Elliðaánum aftur á grillið. Hann segir þó mikilvægt að muna að það að veiða og sleppa sé ekki átak til nokkurra ára heldur langtímaverkefni. Unnið sé að því að laxinn gangi upp fyrir Elliðaárstíflu. „Við ætlum að klára verkefnið sem felst í því að fá fiskinn til þess að nýta svæðin með urriðanum í ánum fyrir ofan Elliðavatn og það tekur tíma. Þangað til við náum þessum árangri þá erum við á réttri leið.“

Go to News Site