Collector
Breytingar á einkunnagjöf ekki í vinnslu hjá MMS | Collector
Breytingar á einkunnagjöf ekki í vinnslu hjá MMS
Fréttastofa RÚV

Breytingar á einkunnagjöf ekki í vinnslu hjá MMS

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) er ekki kunnugt um nánari útfærslu á fyrirhuguðum breytingum á einkunnagjöf í skólum umfram það sem Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti í ræðu sinni á þingi Kennarasambands Íslands. Þetta kemur fram í svörum við fyrirspurn fréttastofu. Þar segir einnig að stofnuninni hafi ekki verið falið að útfæra eða innleiða breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum. Ekki sé hafin vinna við neinar af þeim breytingum sem ráðherra boðaði. Myndi kalla á endurskoðun aðalnámskrár Að mati MMS myndu slíkar breytingar kalla á endurskoðun á þeim köflum aðalnámskrár sem fjalla um námsmat og matskvarða. Þá þyrfti að viðhafa viðeigandi samræmingu innan greinasviða og í samhengi við heildarsýn og markmið aðalnámskrár. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, boðaði breytingar á einkunnakerfi í grunnskólum á þingi Kennarasambands Íslands í gær. Ráðherra sagði í ræðu sem hún hélt á þinginu að hún teldi eðlilegt að nota tölustafi í einkunnagjöf, eins og tíðkast í framhaldsskólum og háskólum, en ekki bókstafi eða önnur form sem geti verið erfitt að skilja. Talsverður styr var um tilkynninguna og sagðist Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins hafa heyrt af þessum áformum fyrst í ræðu Ingu. „Menntamálaráðherra tilkynnti að hún ætlaði að breyta því námsmatskerfi sem hefur verið viðhaft og er um leið aðgöngumiði að framhaldsskólunum okkar. Og að halda að það sé hægt að skipta bara um það eins og að henda krónupeningi ber bara vott um þekkingarleysi,“ sagði hann.

Go to News Site