Collector
„Mesta rugl sem ég hef tekið þátt í, að koma þessu af stað“ | Collector
„Mesta rugl sem ég hef tekið þátt í, að koma þessu af stað“
Fréttastofa RÚV

„Mesta rugl sem ég hef tekið þátt í, að koma þessu af stað“

„Virðing mín fyrir fólki í veitingageiranum hefur aukist um svona 300 prósent. Því þetta er mesta rugl sem ég hef tekið þátt í, að koma þessu af stað.“ sagði Auðunn Blöndal í Morgunútvarpinu á Rás 2. Auðunn Blöndal og Rakel Þormarsdóttir opnuðu á dögunum hverfisstaðinn Fossinn í kjarnanum Grímsbæ í Fossvogi. Þeim tókst að opna bjórdælurnar rétt áður en boltinn rúllaði af stað í Bestu deildinni í síðustu viku og nú eru þau byrjuð að elda dýrindis mat ofan í svanga íbúa hverfisins. „Nú hef ég búið í Fossvoginum í tíu ár og mér finnst þetta það eina sem hefur vantað í hverfið,“ sagði hann. En það er ekki einfalt að opna svona stað og Auðunn segir marga hafa varað sig við. „Ég hef ekki fengið jafn margar aðvaranir síðan ég keypti Hyundai Coupé á 100 prósent láni,“ sagði hann léttur.

Go to News Site