Fréttastofa RÚV
Reynt verður að tryggja sem minnsta röskun á siglingum þegar mótorinn verður tekinn úr Herjólfi til viðgerðar í næstu viku. Breiðafjarðarferjan Baldur mun sigla í stað Herjólfs eftir hefðbundinni áætlun á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja á mánudag og þriðjudag. Mótorinn í Herjólfi þarf að senda til Hollands til viðgerðar. Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, skýrir að Herjólfur geti siglt á takmörkuðu afli. „Við erum núna svona þrjá og hálfan upp í fjóra tíma með siglingu sem tekur venjulega þrjá tíma. Vonandi þegar Landeyjahöfn opnar þá verður það ennþá minna rask.“ Landeyjahöfn er lokuð og óvíst er hvenær hún verður opnuð aftur. Á meðan Baldur siglir fyrir sunnan verða enga siglingar að Brjánslæk á Vestfjörðum eins og alla jafna. Í hans stað mun báturinn Ingólfur sigla milli Stykkishólms og Flateyjar á Breiðafirði. Ástandið við Landeyjahöfn alvarlegt „Eins og staðan er núna, jafnvel þótt Herjólfur sigli hér á milli þá annar hann ekki einu sinni þeirri flutningsþörf sem er nauðsynleg. Þess vegna reynum við að leggja okkur fram um það að gera þetta þannig að þetta hafi sem minnsta röskun,“ segir Ólafur Jóhann. Árstíminn sé enn fremur ekki heppilegur því fleira fólk og vörur þarf að flytja milli lands og Eyja samhliða fjölgun ferðamanna. „Það að við getum bara siglt tvær ferðir á dag - það náttúrlega takmarkar verulega það sem við getum flutt.“ Ástandið við Landeyjahöfn er að mati Ólafs alvarlegt. „Og sýnir svo ekki verður um villst að það þarf að gera úrbætur á höfninni svo hún þjóni þeim tilgangi sem hún átti að gera.“
Go to News Site