Collector
Læknafélag Reykavíkur telur uppsögn Ragnars Freys ólögmæta | Collector
Læknafélag Reykavíkur telur uppsögn Ragnars Freys ólögmæta
Fréttastofa RÚV

Læknafélag Reykavíkur telur uppsögn Ragnars Freys ólögmæta

Læknafélag Reykjavíkur lýsir furðu og vonbrigðum með ákvörðun Landspítala að leggja niður starf sem Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður Læknafélags Íslands, sinnti hjá spítalanum. Ragnar hefur starfað sem sérfræðingur í almennum lyflækningum á Landspítalanum í Fossvogi, í 33% starfshlutfalli, en var sagt upp í síðustu viku. Hann sagði átakanlegt að heyra skýringar framkvæmdastjóra Landspítalans á uppsögninni. Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðalyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, sagði uppsögnina vera hluta af skýrri og ákveðinni aðhaldskröfu stjórnvalda á spítalann. Ragnari var boðið aukið starfshlutfall á spítalanum og þar með falli þau rök niður að starf hans hafi verið lagt niður vegna ríkrar aðhaldskröfu. Hann segir að sér sé ekki fært að auka við sig starfshlutfall á spítalanum vegna annarra starfa. Læknafélagið tekur undir þau rök og segir Landspítalann þurfa að rökstyðja uppsögnina þar sem Ragnar er formaður Læknafélags Reykjavíkur og í trúnaðarstöðu sem hagsmunagæslumaður stærsta hóps lækna í hlutastarfi á Landspítalanum. Stjórn Læknafélagsins telur að brotið sé gegn félagsmönnum með þessum hætti. Vernd trúnaðarmanna sé hornsteinn íslensks vinnumarkaðar. „Veikist sú vernd hefur það víðtækar afleiðingar fyrir réttindi starfsmanna og fyrir starfsemi stéttarfélaga,“ segir í yfirlýsingu Læknafélags Reykjavíkur. Stjórnin krefst þess að spítalinn leggi fram fullnægjandi rökstuðning fyrir ástæðum þess að staða formanns Læknafélags Reykjavíkur á spítalanum var lögð niður, upplýsi með hvaða hætti samráð fór fram og að sýnt verði fram á að niðurlagning starfsins tengist með engum hætti og sé óháð trúnaðarmannshlutverk formanns Læknafélags Reykjavíkur. Stjórn félagsins hyggst fylgja málinu eftir og útilokar ekki að grípa til lagalegra úrræða.

Go to News Site