Collector
Starfsfólk FS fordæmir vinnubrögð og framkomu ráðuneytis | Collector
Starfsfólk FS fordæmir vinnubrögð og framkomu ráðuneytis
Fréttastofa RÚV

Starfsfólk FS fordæmir vinnubrögð og framkomu ráðuneytis

Starfsfólk Fjölbrautaskóla Suðurnesja fordæmir bæði vinnubrögð og framkomu mennta- og barnamálaráðuneytisins og segir ákvörðun skólameistara skólans að segja upp stöðu sinni í mótmælaskyni vera „áfall fyrir starfsfólk“. Kristinn Ásmundsson tilkynnti fyrr í dag að hann hefði ákveðið að hætta sem skólameistari skólans eftir næstum 40 ára starf við FS. „Það er bara í rauninni húsnæðismál. Við erum búin að berjast lengi í þessu,“ segir Kristján í samtali við RÚV fyrr í dag um ástæður starfsloka sinna. Í yfirlýsingu frá starfsfólki segir að ráðuneytið hafi um árabil ekki staðið við gefin loforð um viðbyggingu og bætta aðstöðu þrátt fyrir að það væri löngu tímabært að ráðast í úrbætur. „Ekkert hefur þokast áfram í þessum málum og í kjölfar tilkynningar skólameistara í dag um ástæðu uppsagnar er ljóst að úrbætur eru ekki fyrirsjáanlegar á næstunni. Af þeim sökum hefur Kristján Ásmundsson, skólameistari, sagt upp stöðu sinni í mótmælaskyni,“ segir í yfirlýsingunni. Starfsfólk skorar á ráðuneytið að „standa við gefin loforð og hefja framkvæmdir við stækkun skólans strax í sumar“. Starfsmenn, líkt og skólameistarinn fyrrverandi, harmi áhugaleysi stjórnvalda á málefnum skólans.

Go to News Site