Fréttastofa RÚV
Tilkynnt var í gær að ekkert yrði af samruna Arion banka og Kviku vegna álits Samkeppniseftirlitsins. Forstjóri Kviku segir að í áliti Samkeppniseftirlitsins hafi Kvika verið álitin of mikilvægt fyrirtæki á markaði til að það gæti runnið saman við Arion banka. „Þegar uppi er staðið, þá fengu þær mótvægisaðgerðir sem við lögðum til bankanna, til þess að draga úr þeim áhrifum í samrunanum, ekki hljómgrunn. Þannig að ég held að þetta sé kannski grunnástæðan,“ segir Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku. Fulltrúar bankanna tveggja funduðu með Samkeppniseftirlitinu í gær og að forviðræðum loknum var afstaða Samkeppniseftirlitsins kynnt. Stjórnir bæði Arion og Kviku banka töldu að ekki gæti orðið af samruna bankanna í ljósi afstöðu Samkeppniseftirlitsins. „Yfirleitt er það þannig að ef það er of stór markaðshlutdeild á einhverjum markaði þá er möguleiki á að selja frá sér hluta af starfseminni en það hins vegar gengur ekki upp þegar undirliggjandi ástæðan er sú að Samkeppniseftirlitið vill ekki missa aðilann í heild sinni, ef svo má segja,“ segir Ármann. Hann segir að bæði Kvika og Arion hafi verið sammála um að samruninn hefði verið til hagsbóta bæði fyrir hluthafa og neytendur. Með samrunanum var talið mögulegt að lækka heildarrekstrarkostnað bankanna og koma þá hluta af þeim sparnaði til viðskiptavina ásamt því að gera bankann samkeppnishæfari. „Ég er ósammála að því leytinu til að við töldum að þetta væri til hagsbóta fyrir neytendur en þetta er auðvitað bara þannig að fólk hefur mismunandi skoðanir á þessu og þetta var bara niðurstaðan,“ segir Ármann.
Go to News Site