Collector
Trump segir Írana tilbúna til að láta kjarnorkubirgðir af hendi | Collector
Trump segir Írana tilbúna til að láta kjarnorkubirgðir af hendi
Fréttastofa RÚV

Trump segir Írana tilbúna til að láta kjarnorkubirgðir af hendi

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írana hafa samþykkt að afhenda Bandaríkjamönnum úraníumbirgðir sínar. „Þeir hafa fallist á að láta okkur fá kjarnorkurykið aftur,“ sagði Trump á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag og vísaði þar með til úraníumbirgða Íran sem Bandaríkin hafa sagt að hægt sé a nýta í framleiðslu kjarnorkuvopna. „Það er mjög líklegt að við náum samkomulagi,“ sagði Trump. Fyrr í dag fullyrti forsetinn að samkomulag hefði náðst um tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon. Á Truth Social segist hann hafa rætt við Joseph Aoun, forseta Líbanons, og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og þeir ætli að hittast í Washington í næstu viku.

Go to News Site