Collector
Foreldrar drengsins í Hafnarfirði: „Réttarkerfið hefur ekki tryggt öryggi okkar“ | Collector
Foreldrar drengsins í Hafnarfirði: „Réttarkerfið hefur ekki tryggt öryggi okkar“
Fréttastofa RÚV

Foreldrar drengsins í Hafnarfirði: „Réttarkerfið hefur ekki tryggt öryggi okkar“

Helgi Bjartur Þorvarðarson braust inn á heimili fjölskyldunnar í september í fyrra, fór inn í svefnherbergi tíu ára drengs og áreitti hann kynferðislega. Hann var í gær dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir brot sín. Foreldrar drengsins, sem koma ekki fram undir nafni til að vernda barn sitt, segja niðurstöðuna áfall. Framburður drengsins dreginn í efa Þau segjast túlka dóminn þannig að barni þeirra sé ekki trúað eða að vitnisburður hans hafi engu máli skipt. „Ef það hefði ekki mælst lífsýni innan klæða þá syni okkar þá væri maðurinn líklega sýknaður. En það fundust þau gögn og gögnin sem finnast eru í samræmi við það sem sonur okkar segir, en allt annað sem er ekki hægt að sanna með vísindalegum gögnum eða myndavélum á staðnum virðist vera hundsað.“ Drengurinn gaf tvær skýrslur hjá lögreglu og í Barnahúsi en það er mat dómsins að fara þurfi varlega í að draga ályktanir af framburði hans. Þá er það gefið í skyn að einhver hafi haft áhrif á vitnisburð drengins. „Það virðist vera gefið í skyn og ég er mjög ósáttur við það. Það er alls, alls ekki rétt. Við lögðum mjög mikla áherslu á það strax í upphafi að spyrja hann aldrei beint út í hvað gerðist eða vera með leiðandi spurningar.“ Þau segjast hafa fengið ráðgjöf frá sérfræðingum áður en drengurinn gaf skýrslur í Barnahúsi um hvernig best væri að ræða málið við hann fyrir vitnisburðinn. Þar hafi þeim verið ráðlagt að ræða málið ekkert við drenginn, og þau fylgdu þeim ráðum. Vægur dómur yfir Helga Bjarti Þorvarðarsyni, sem var sakfelldur í gær fyrir að brjóta kynferðislega á tíu ára dreng á heimili hans í Hafnarfirði, er áfall, segja foreldrar drengsins. Þau segjast fangar á eigin heimili nú þegar Helgi gengur laus. Orð gegn óminni, ekki orð gegn orði Foreldrarnir segja framburð drengsins hafa verið skýran. Þá hafi hann greint lögreglu á vettvangi strax frá brotunum og framburður hans í skýrslutökum hafi samrýmst þeim lýsingum. Þau þvertaka fyrir að einhver annar hafi getað haft áhrif á frásögn drengsins, sem sé sláandi. „Maðurinn fór úr buxunum, reyndi að klæða hann úr, eða klæddi hann úr buxunum, og káfaði á einkastöðunum hans. Hann segir þetta mjög skýrt við okkur, við lögreglu og í Barnahúsi og það er aldrei nein breyting þar á. Það er svo ljóst að þetta gerðist. En niðurstaðan er sú að maðurinn er sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni, sem er ekki það sama og ég myndi túlka þennan verknað að káfa á kynfærum barns. Að leggjast upp í rúm og káfa á kynfærum barns.“ Helgi Bjartur var ákærður fyrir húsbrot, kynferðislega áreitni gegn barni og nauðgun. Hann var sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni og húsbrot. Helgi Bjartur ber fyrir sig minnisleysi. „Niðurstaðan er þessi af því að þetta er orð gegn orði. Sem er algörlega út í hött túlkun. Þetta er ekki orð gegn orði. Þetta er sannfærandi frásögn barns sem ítrekað sagði rétt frá gagnvart manni sem segist ekki muna neitt en hafnar því samt að hafa gert þetta. Við erum að tala um orð gegn óminni, ekki orð gegn orði.“ Móður barnsins líður eins og börnum sé ekki trúað og að vitnisburður drengs þeirra hafi ekki verið tekinn gildur. Faðrinn er ósáttur við að ekki sé hlustað á framburð sonarins „Til hvers að vera að taka viðtöl í Barnahúsi ef það á ekki að fara eftir eða hlusta á það sem börnin segja þar?“ Furða sig á ýmsu við rannsókn málsins Foreldrar drengsins furða sig á ýmsum atriðum við rannsókn málsins, til dæmis því að sími mannsins hafi aldrei fundist og að tölva hans hafi ekki verið gerð upptæk líkt og venja er í rannsóknum á málum sem þessum. Þau segjast þó þakklát fyrir meðferð málsins, að málinu hafi verið tekið alvarlega frá upphafi og að maðurinn hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að rannsókn lauk. „En ég veit líka að það eru mörg mál sem komast ekki eins langt og mál okkar drengs. Það eru mjög mörg mál sem fara ekki í ákæru, fara ekki í dóm, þar sem menn eru sýknaðir af öllum liðum þannig að það er líka margt ti þess að vera þakklátur fyrir þó svo að við hefðum auðvitað viljað að niðurstaðan væri önnur.“ Segja túlkun dómsins ekki samrýmast frásögn drengsins Helgi Bjartur var dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu skilorðsbundna. Ákæruvaldið fór fram á talsvert þyngri dóm en féll. Foreldrarnir segja undarlegt að dómurinn hafi túlkað þau brot sem hann telur sönnuð sem kynferðislega áreitni. „Það er metið þannig að hann hafi komið inn, hann káfar á honum þau staðfesta það, og að hann hafi dregið náttbuxurnar hans niður. Mér finnst það vera kynferðisbrot gegn barni. Mér finnst það fara fram yfir það sem við tölum um sem kynferðislega áreitni. Ef við tölum um að refsiramminn fyrir kynferðislega áreitni sé sex ár. Hvenrig getur það verið að hann fái 12 mánaða dóm fyrir kynferðislega áreitni með þessum hætti? Hvað þarf þá að gerast undir hugtakinu kynferðislega áreitni þannig að maður fái sex ára dóm?“ „Ég hefði viljað sjá manninn sakfelldan fyrir tilraun til nauðgunar. Það er það sem frásögn barnsins okkar segir.“ „Hann gengur laus og ég býst við öllu af honum Helgi Bjartur var úrskurðaður í gæsluvarðhald í janúar þegar rannsókn málsins var lokið. Hann var í haldi lögreglu þar til í gær. Foreldrarnir segja það hafa verið mikinn létti þegar hann var hnepptur í varðhald. „Við fórum í fyrsta skipti í sund með barninu okkar þá. Ég gat leyft drengnum okkar að fara út með vinum, út í ísbuð. Það var eitthvað sem ég hafði ekki getað tekist á við áður þegar hann gekk um laus.“ Helgi Bjartur hefur afplánað þá þrjá mánuði dómsins sem voru óskilorðsbundnir og var sleppt úr haldi eftir að dómur var kveðinn upp í gær. „Við erum bara aftur í fangelsi á okkar eigin heimili.“ Þau segja það að hann gangi laus vera fjölskyldunni mjög erfitt. Hann í býr í sama hverfi og fjölskyldan og foreldrarnir óttast að drengurinn þeirra mæti honum á förnum vegi. „Ég veit ekki hvernig við eigum að lifa áfram á okkar heimili, í okkar bæjarfélagi. Tólf mánuðir, sextán mánuðir, tvö ár; það sem við hefðum fyrst og fremst þurft að fá væri það að hann mætti ekki búa í bæjarfélaginu okkar.“ Þau segjast hafa íhugað að flytja úr hverfinu. „Við erum ekki örugg. Réttarkerfið hefur ekki tryggt öryggi barnsins okkar og ekki okkar og hann gengur laus og ég bara býst við öllu af honum.“ „Það eina sem við höfum eru orðin okkar“ Það er í höndum ríkissaksóknara að ákveða hvort málinu verði áfrýjað. Þá ákvörðun þarf að taka innan fjögurra vikna. Foreldrarnir segjast þeirra vinnu núna snúa fyrst og fremst að því að hlúa að fjölskyldunni. „Og reyna að ná einhverjum bata og fótfestu í raunveruleika sem við skiljum ekki alveg ennþá. Reyna að sjá það góða sem er ennþá til í þessu lífi þó að þetta myrkur heltaki manni.“ „Við erum algjörlega valdalaus í þessu máli. Við höfum engin áhrif á það hvað verði gert í framhaldinu. Eina valdið sem við höfum eru orðin okkar.“ Foreldrarnir hafa áður stigið fram í fjölmiðlum undir nafnleynd og hafa sætt gagnrýni fyrir það. Þau segja þöggun ekki hjálpa neinum og telja rétt að sýna það í verki að það skömm eigi ekki að vera fylgifiskur þess að lenda í kynferðiofbeldi. „Sonur okkar gerði ekkert rangt. Við gerðum ekkert rangt. Við eigum ekki að þurfa að fara í felur og bera okkar áfall ein. Það er ekki það sem hjálpar fólki. Við trúum því að þöggun á þessum málum sé ekki það sem hjálpi þolendum.“ Þau segja Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, hafa veitt þeim kjark til að stíga fram. Halla sagði frá kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir sem barn í viðtali við Heimildina í desember. „Það koma upp þessar tilfinningar þegar maður veit að barnið sitt hefur lent í þessu: Hvað verður um hann? Mun hann einhvern tímann ná bata? Er lífið hans ónýtt? En það að vita að við eigum forseta sem varð fyrir kynferðisofbeldi gefur mér trú að það verði í lagi með hann,“ segir móðirin. Nú tekur við bið eftir ákvörðun ríkissaksóknara. „Dómsmálið er eitt, það að hann gangi laus er annað en svo er það það að barnið okkar mun búa við þennan skaða alla sína ævi og það verður vinna sem við munum þurfa að vera í á hverjum einasta degi.“ Vægur dómur yfir Helga Bjarti Þorvarðarsyni, sem var sakfelldur í gær fyrir að brjóta kynferðislega á tíu ára dreng á heimili hans í Hafnarfirði, er áfall, segja foreldrar drengsins. Þau segjast fangar á eigin heimili nú þegar Helgi gengur laus.

Go to News Site