Fréttastofa RÚV
Fiorentina tók á móti Crystal Palace í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Palace fór með gott veganesti inn í leikinn því liðið vann 3-0 í fyrri leik liðanna og það reyndist dýrmætt. Ismaïla Sarr kom Palace yfir á 17. mínútu, 1-0. Það kom svo í hlut Alberts Guðmundssonar að jafna metin fyrir Fiorentina á 30. mínútu. Leikurinn endaði með 2-1 sigri Alberts og félaga sem dugði þó ekki til að komast inn í undanúrslitn. Palace sigraði einvígið 4-2 og fer því áfram í næstu umferð. Albert fagnar markinu.AP/LaPresse / Massimo Paolone
Go to News Site