Collector
Nýtt jarðhitasvæði gæti nýst til bæði húshitunar og raforkuframleiðslu | Collector
Nýtt jarðhitasvæði gæti nýst til bæði húshitunar og raforkuframleiðslu
Fréttastofa RÚV

Nýtt jarðhitasvæði gæti nýst til bæði húshitunar og raforkuframleiðslu

270 gráðu hiti mælist á nýju jarðhitasvæði Orkuveitunnar á Hellisheiði. Það gæti orðið lykilsvæði Orkuveitunnar til framtíðar og hugsanlega nýst til bæði húshitunar og raforkuframleiðslu. Jarðhitasvæðið er á Meitlum á Hellisheiði, á hægri hönd þegar ekið er í átt að Hveragerði. Harpa Pétursdóttir, forstöðukona nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni, segir svæðið hafa verið rannsakað um nokkurt skeið. „En núna í lok síðasta árs og byrjun þessa árs höfum við borað tvær rannsóknarholur á þessu svæði sem eru að sýna okkur nokkuð háan hita, um 270 gráður. Þannig þetta er svæði sem að gefur mjög góðar væntingar um að þarna sé auðlind að finna,“ segir hún. Tilraunaboranir á nýju jarðhitasvæði á Hellisheiði sýna allt að 270 gráðu hita. Vonir standa til þess að það geti nýst bæði til húshitunar og raforkuframleiðslu. Gæti hentað bæði til húshitunar og raforkuframleiðslu Bora þurfi eina holu til viðbótar og gera frekari rannsóknir til að svara til um hvernig svæðið geti nýst eða hve mörgum það geti séð fyrir heitu vatni. Það ætti að liggja fyrir á næstu mánuðum. „Þá getum við farið að skoða möguleikana. Hvort þetta verði annars vegar varmaframleiðsla til húshitunar eða einnig til raforkuframleiðslu, sem væri auðvitað frábært því þá erum við að nýta auðlindina enn betur,“ segir Harpa. „Svo eigum við líka eftir að komast að því hvað við gerum, hvort þetta verði þá ný sérstæð virkjun eða uppbót fyrir Hellisheiðarvirkjun.“ Gæti orðið eitt lykilsvæða Orkuveitunnar Uppgötvunin hafi sérstaka þýðingu - því að fyrir tveimur árum var ákveðið að Orkuveitan skyldi setja mun meiri áherslu á, og fjárfesta í, orkuöflun. „Þetta talar bara beint inn í það. Þetta er þá mögulega nýtt svæði sem getur komið til með að vera eitt lykilsvæða Orkuveitunnar í orkuframleiðslu fyrir samfélagið,“ segir Harpa. Hefur mikla þýðingu fyrir þjóðina Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir fundinn hafa mikla þýðingu fyrir þjóðina. Þjóðin sé að stækka og spár geri ráð fyrir að hún telji hálfa milljón eftir tólf ár. „Við þurfum mikinn hita og við þurfum þetta líka til að tryggja það orkuöryggi, eða orkusjálfstæði, sem við erum svo vön hér á Íslandi. Ef við horfum bara til þess að jarðhitinn og varminn sem fólk notar til húshitunar er einungis 40% af því sem fólk borgar á Norðurlöndunum. Það segir bara hversu mikla þýðingu þetta hefur fyrir okkur,“ sagði Sævar í sjónvarpsfréttum í kvöld. „Svo auðvitað, ef þetta er raforka, þá erum við að horfa upp á mikla verðmætasköpun þar sem við getum stuðlað að uppbyggingu og atvinnu og það er okkur hjartans mál.“ „Við erum að fara að bora miklu meira“ Sævar Freyr segir Orkuveituna hafa nokkuð góða mynd af heitavatnsþörf höfuðborgarsvæðisins næstu ár. „Það er svona að stækka um 2,6% á hverju ári. Það er það sem við erum að vinna að að tryggja og þurfum að bora mun meira til þess að ná því,“ segir Sævar. Bindið þið vonir við að þetta svæði geti mætt þessari þörf? „Í rauninni nei. Þetta eru auðvitað frábær tíðindi fyrir þjóðina, að við séum að finna þarna nýtt jarðhitasvæði, en við erum að fara að bora miklu meira og vorum að segja frá því í dag að við erum að fara mun víðar og setja sjö og hálfan milljarð í önnur svæði sem við erum að leita að – einmitt til að mæta framtíðarþörf samfélagsins hér á suðvesturhorni landsins.“ Orkuveitan áformar 230 milljarða fjárfestingar á næstu árum. „Við ætlum að fara dýpra. Við ætlum að fara undir auðlindina sem við höfum verið að nýta síðustu áratugina, að sækja í auðlind sem er 450 gráðu heit. Ef við náum því þá er möguleiki á að við séum búin að finna tækni þar sem að orka um allt Ísland mun finnast,“ segir Sævar Freyr.

Go to News Site