Fréttastofa RÚV
Hernaðaryfirvöld í Líbanon segja Ísraelsher í nótt hafa haft uppi hernaðartilburði og þannig brotið gegn ákvæðum vopnahlésins sem tók gildi á miðnætti að staðartíma. Reykur stígur til himins eftir loftárás Ísraelshers á þorpið Bint Jbeil í Suður-Líbanon í gær.EPA / ATEF SAFADI Her Líbanons hvatti í færslu á X íbúa í sunnanverðu landinu að hafa varann á vegna athæfis Ísraelshers eftir að vopnahléð komst á. Ísrael dró herlið sitt ekki til baka. Líbanska ríkisfréttastöðin NNA segir Ísraelsher hafa gert stórskotaliðsárásir í landinu sunnanverðu. Ísraelsk stjórnvöld hafa ekki enn tjáð sig um málið.
Go to News Site