Collector
Fjármálaráðherrar G7 segja brýnt að draga úr efnahagslegum afleiðingum stríðsins | Collector
Fjármálaráðherrar G7 segja brýnt að draga úr efnahagslegum afleiðingum stríðsins
Fréttastofa RÚV

Fjármálaráðherrar G7 segja brýnt að draga úr efnahagslegum afleiðingum stríðsins

Fjármálaráðherrar G7-ríkjanna segja brýnt að draga úr efnahagslegum afleiðingum stríðsins í Mið-Austurlöndum. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur valdið verðhækkunum og jafnvel skorti á ýmsum vörum.EPA / TOLGA AKMEN Ráðherrarnir áréttuðu jafnframt mikilvægi þess að varanlegur friður komist á í heimshlutanum. Styrjöldin var eitt þriggja meginumræðuefna fundar ráðherranna og seðlabankastjóra ríkjanna sem hittust á vorfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington. Jafnframt ræddu þeir leiðir til að tryggja birgðakeðjur fyrir mikilvæg jarðefni og frekari stuðning við Úkraínu.

Go to News Site