Fréttastofa RÚV
Donald Trump Bandaríkjaforseti er ekki hættur óbeinum rökræðum við Leó páfa XIV . Hann geti sagt það sem hann lystir um heimsmálin en hann verði að átta sig á að veröldin sé raunverulega vond. Forsetinn hefur undanfarna daga gagnrýnt skoðanir þessa leiðtoga 1,4 milljarðs kaþólikka allt frá innflytjendamálum til stríðs Bandaríkjanna gegn Íran, kallað hann veikgeðja vinstrimann og vankunnandi í utanríkismálum. Leó hefur á móti sagt bera siðferðilega skyldu til að andæfa stríðum og ofbeldi . Meðal annars sagði hann að hótanir Trumps um gereyðingu sex þúsund ára gamallar siðmenningar í Íran hefðu verið gersamlega óásættanlegar. Nokkuð kvað við mildari tón hjá Trump í gær þegar hann ræddi heimsmálin við fréttamenn en ákvað þó að messa örlítið yfir páfa um klerkastjórnina í Íran. „Páfi verður að skilja að Íransstjórn hefur drepið yfir 42 þúsund saklausa, óvopnaða mótmælendur síðustu mánuði,“ sagði Trump. Hann bætti loks við að þannig væri raunveruleikinn í oft andstyggilegum heimi. Forsetinn kvaðst jafnframt alls ekki eiga í útistöðum við páfa og væri honum alls ekki andsnúinn. Þó er stutt síðan Trump sagði sér ekki líka við Leó XIV.
Go to News Site