Collector
Smá vætutíð en léttir svo til | Collector
Smá vætutíð en léttir svo til
Fréttastofa RÚV

Smá vætutíð en léttir svo til

Íbúar á vestan- og norðanverðu landinu mega gera ráð fyrir skúrum og jafnvel rigningu framan af degi áður en léttir til þegar á líður. Á Austfjörðum þykknar upp og fer að rigna seint í kvöld. Frekar svalt verður á Vestfjörðum, allt niður í þriggja stiga hiti, en annars staðar verður hlýrra, allt að tólf stiga hiti. Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld: Hæg breytileg átt og smá skúrir vestantil, en dálítil rigning eða súld norðaustanlands í fyrstu, en léttir síðan til. Þykknar upp og fer að rigna á Austfjörðum seint í kvöld. Hiti 3 til 12 stig að deginum, svalast á Vestfjörðum. Vestlæg átt á morgun, víða 5-13. Skúrir eða slydduél en úrkomumeira austast fyrripartinn. Minnkandi vindur og úrkoma síðdegis, en hægt vaxandi suðaustanátt suðvestantiltil um kvöldið. Hiti 5 til 10 stig suðaustanlands, annars 1 til 6 stig. Horfur á landinu næstu daga: Norðvestanátt með úrkomu á víða og dreif á laugardag. Milt suðaustan lands, annars fremur svalt. Síðan suðlægar átt, lengst af þurrt og fremur hlýtt. Kólnar líklega seint á fimmtudag og mögulega snjókoma nyrst um kvöldið.

Go to News Site