Fréttastofa RÚV
Ísland vann Úkraínu 1-0 á þriðjudag í undankeppni HM kvenna. Leikið var á Laugardalsvelli líkt og gert verður á laugardag þegar England mætir í heimsókn. En hvað getur íslenska liðið tekið með sér úr sigrinum á Úkraínu? „Sjálfstraustið,“ sagði Emilía Kiær Ásgeirsdóttir. „Að hafa fengið þessi þrjú stig, fylgt planinu og náð markmiðinu þar. Og við getum farið kannski aðeins rólegri inn í Englandsleikinn, vitandi hvað við getum og eftir að hafa spilað við England áður og geta bætt ofan á það.“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekur á móti Englandi á Laugardalsvelli á Laugardaginn í undankeppni HM. Liðið vann góðan sigur á Úkraínu í vikunni og leikmenn segja það góða tilfinningu að fara með sigur á bakinu inn í þennan stórleik. Ísland og England mættust ytra í fyrri leik sínum í undankeppninni í mars þar sem enska liðið hafði betur, 2-0. Sigurinn gegn Úkraínu hjálpar þó að sögn leikmanna í undirbúningnum fyrir England: „Við náttúrulega skorum úr föstu leikatriði,“ sagði markvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir. „Og höldum hreinu. Það verður mikilvægt að nýta föstu leikatriðin á laugardaginn, fáum kannski ekki jafn mörg en verðum að nýta þau sem við fáum. Og náttúrlega auðvelt að segja að halda hreinu en við reynum það.“ Geta haldið betur í boltann Hildur Antonsdóttir var ánægð með margt í leik liðsins á þriðjudaginn: „Mér fannst við ná að halda vel í boltann og bjuggum til mikið af hálffærum og fleiri færi líka sem við hefðum getað skorað úr. Þannig að við getum vonandi gert meira af því á móti Englandi heldur en við gerðum í síðasta leik, þrátt fyrir að við vitum auðvitað að við munum verjast meira en við getum líka haldið betur í boltann en við gerðum í síðasta leik á móti Englandi.“ Cecilía Rán segir liðið vera ánægt með sigurinn og dagurinn eftir hann hafi farið í hvíld en síðan hafi einbeitingin farið í Englandsleikinn: „Það verður hörkuleikur en vonandi gerum við eitthvað sérstakt.“
Go to News Site